Viðskipti innlent

Rúmlega hundrað missa vinnuna hjá Isavia

Eiður Þór Árnason skrifar
Fáir hafa verið á ferli í Leifsstöð að undanförnu.
Fáir hafa verið á ferli í Leifsstöð að undanförnu. Vísir/vilhelm

101 starfsmanni Isavia hefur verið sagt upp störfum og 37 starfsmönnum boðið áframhaldandi starf í lægra starfshlutfalli, samkvæmt heimildum Vísis.

Um er að ræða starfsmenn hjá móðurfélagi Isavia sem rekur Keflavíkurflugvöll. Flest önnur svið félagsins eru í dótturfélögum. Forstjóri Isavia hefur boðað til fjarfundar síðdegis í dag með starfsfólki sínu til að ræða stöðuna.

Mikið hrun hefur verið í umferð um Keflavíkurflugvöll á stuttum tíma og hefur Leifsstöð verið líkt við hálfgerðan draugabæ. Á dögunum var þjónustustig í verslunum og veitingum á Keflavíkurflugvelli takmarkað sökum lítillar flugumferðar.

Sjá einnig: Keflavíkurflugvöllur eins og draugabær

Stórlega hefur dregið úr umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu eftir að hratt fór að draga úr flugumferð fyrr í mánuðinum.

Þær uppsagnir sem móðurfélag Isavia ræðst í núna munu vera til að bregðast við minnkandi umsvifum félagsins til langs tíma. Ekki stendur til að nýta sér úrræði stjórnvalda að svo stöddu sem snúa að greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar.

Fríhöfnin ætlar þó að nýta úrræði stjórnvalda, sem hugsað er til að bregðast við skammtímaáhrifum faraldursins. Það gerir félaginu kleift að ráðast ekki í uppsagnir á fastráðnum starfsmönnum Fríhafnarinnar.

Tvær flugferðir á áætlun í dag

Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Isavia ANS sem rekur meðal annars alþjóðaflugstjórnarmiðstöðina á Reykjavíkurflugvelli, sagði í samtali við fréttastofu í liðinni viku að umferðin um svæðið hafi dregist saman um 65 prósent á einungis tíu dögum.

Einungis sex flug voru áætluð alla helgina á Keflavíkurflugvelli og hafa stjórnvöld samið við Icelandair um greiðslur frá ríkinu til að halda uppi lágmarkssamgöngum til og frá landinu.

Tvær flugferðir eru á áætlun í dag, báðar á vegum Icelandair. Öllum öðrum hefur verið aflýst, alls yfir sextíu talsins.

Tilkynning Sveinbjörns Indriðasonar, forstjóra Isavia til starfsmanna í heild sinni:

„Í morgun þurftum við því miður að ráðast í uppsagnir til að bregðast við áhrifunum af Covid-19 heimsfaraldrinum. Eins og staðan er í dag gerum við ráð fyrir að farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll, á þessu ári, fækki um helming og það er ljóst að áhrifin á innanlandsflug og flugleiðsöguþjónustu verði einnig veruleg. Uppsagnirnar náðu til 101 starfsmanns og því til viðbótar verður 37 starfsmönnum boðið áframhaldandi starf í lægra starfshlutfalli. Þegar hefur verið reynt að hafa samband við stóran hluta þeirra starfsmanna sem þessar aðgerðir ná til. Eingöngu er um að ræða starfsmenn móðurfélags Isavia.

Aðgerðir af þessu tagi eru alltaf afar erfiðar en þær eru því miður óumflýjanlegar vegna samdráttar í flugumferð. Við þökkum öllu þessu góða fólki fyrir þeirra störf og óskum þeim velfarnaðar.

Móðurfélag Isavia ásamt dótturfélögunum Isavia Innanlands og Isavia ANS munu að svo stöddu ekki nýta sér úrræði stjórnvalda sem snúa að greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar. Þær uppsagnir sem ráðist er í núna eru til að bregðast við minnkandi umsvifum til langs tíma en úrræði stjórnvalda er fyrst og fremst til að bregðast við skammtímaáhrifum faraldursins. Fríhöfnin mun nýta úrræði stjórnvalda sem gerir félaginu kleift að ráðast ekki í uppsagnir á fastráðnum starfsmönnum sínum.

Við munum eins og kostur er svara ákalli stjórnvalda um að þau fyrirtæki, sem það geti, standi vörð um störfin í landinu. Þessar aðgerðir sem við ráðumst í núna taka mið af því. Við sjáum fyrir okkur að geta staðið straum af rekstrarkostnaði félagsins fram á haust án þess að fá inn neinar tekjur á móti. Við verðum líka að hafa í huga að við byggjum okkar rekstur á umfangsmiklum innviðum sem er mikilvægt að viðhalda.

Óvissan um áhrifin af Covid-19 er verulega mikil og við þurfum að leggja allt kapp á að aðgangur okkar að fjármagni dugi þar til hjólin fara að snúast á ný. Við róum að því öllum árum að tryggja nægjanlega fjármögnun svo við getum haldið verkefnum okkar gangandi þar til sjóðstreymið okkar verður jákvætt á ný.

Á árunum eftir hrun var skorið mikið niður hjá Isavia. Félagið var því ekki tilbúið að takast með nægjanlega skilvirkum hætti á við þann mikla vöxt sem varð í kjölfarið. Reyndar er aðdáunarvert þegar horft er til baka hvernig við komumst í gegnum þetta hraða vaxtarskeið. Það má að stærstum hluta þakka dugnaði og elju starfsfólks okkar. Nú er afar mikilvægt að við notum tímann vel til að byggja upp rekstrarinnviði félagsins svo við verðum tilbúin og samkeppnishæfari þegar hjólin fara að snúast á ný. Þá er líka horft til Isavia varðandi áframhaldandi uppbyggingu innviða. Markmiðið er að með þessu móti takist okkur að verja störfin sem best þó óvissan sé vissulega veruleg vegna Covid-19 faraldsins.

Mig langar að lokum til að þakka ykkur öllum fyrir gott starf á erfiðum tímum. Við þurfum öll að standa saman um það verkefni okkar að koma Isavia heilu í gegnum þá ófærð sem framundan er. Þá langar mig að biðja ykkur um að fara varlega, gæta að heilsu ykkar sjálfra og ykkar nánustu og fara að fyrirmælum yfirvalda til að draga úr líkum á smiti. Við skulum líka vera dugleg að halda góðu sambandi við hvort annað, sérstaklega í ljósi þess hversu stórum hluta af starfi margra er sinnt í fjarvinnu.“


Tengdar fréttir

Ár liðið frá falli WOW Air

Í dag er ár liðið frá falli WOW Air og hafði fall félagsins mikil áhrif á atvinnu- og efnahagslíf á Íslandi.

Stórlega dregið úr umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu

Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið hefur dregist saman um tæp sextíu prósent á síðustu tíu dögum. Mestu munar um mikinn samdrátt í alþjóðlegu flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna og til og frá Keflavíkurflugvelli.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×