Innlent

Leigu­bíl­stjóri grunaður um líkams­á­rás eftir að far­þegi greiddi ekki farið

Sylvía Hall skrifar
Atvikið átti sér stað á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Atvikið átti sér stað á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm

Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna farþega sem neitaði að greiða ökugjald fyrir farið. Farþeginn sagði lögreglu að bílstjórinn hefði slegið sig í höfuðið þegar hann reyndi að yfirgefa bílinn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að farþeginn sé grunaður um fjársvik vegna málsins og bílstjórinn grunaður um líkamsárás.

Þá var tilkynnt um eignaspjöll í Hlíðahverfi skömmu fyrir miðnætti eftir að kona braut rúðu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti atvikið sér stað í húsi þar sem konan var ekki velkomin.

Annar leigubílstjóri hafði óskað eftir aðstoð lögreglu fyrr um kvöldið eftir að farþegi braut rúðu í bifreiðinni. Þegar lögreglu bar að garði um klukkan níu í gærkvöld var farþeginn enn á vettvangi.

Lögregla hafði í nógu að snúast á aðfangadagskvöld. Vísir/Vilhelm

Stal skiptimynt fyrir hjálparstarfsemi

Á sjöunda tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot og þjófnað í verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þar hafði hurð verið spennt upp og einstaklingur farið inn. Einhverjar skemmdir voru á vettvangi og hafði skiptimynt verið stolið sem og smámynt fyrir hjálparstarfsemi.

Þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps við gatnamót í Breiðholti. Báðar bifreiðar voru fluttar af vettvangi með Króki og fundu ökumennirnir báðir fyrir smávægilegum eymslum. Þeir afþökkuðu þó aðstoð sjúkraliðs en tjónvaldur, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, er grunaður um akstur gegn rauðu ljósi.

Samkvæmt dagbók lögreglu voru tvær bifreiðar stöðvaðar í gærkvöldi þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×