Leigubílstjóri grunaður um líkamsárás eftir að farþegi greiddi ekki farið Sylvía Hall skrifar 25. desember 2020 08:50 Atvikið átti sér stað á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna farþega sem neitaði að greiða ökugjald fyrir farið. Farþeginn sagði lögreglu að bílstjórinn hefði slegið sig í höfuðið þegar hann reyndi að yfirgefa bílinn.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir að farþeginn sé grunaður um fjársvik vegna málsins og bílstjórinn grunaður um líkamsárás. Þá var tilkynnt um eignaspjöll í Hlíðahverfi skömmu fyrir miðnætti eftir að kona braut rúðu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu átti atvikið sér stað í húsi þar sem konan var ekki velkomin. Annar leigubílstjóri hafði óskað eftir aðstoð lögreglu fyrr um kvöldið eftir að farþegi braut rúðu í bifreiðinni. Þegar lögreglu bar að garði um klukkan níu í gærkvöld var farþeginn enn á vettvangi. Lögregla hafði í nógu að snúast á aðfangadagskvöld. Vísir/Vilhelm Stal skiptimynt fyrir hjálparstarfsemi Á sjöunda tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot og þjófnað í verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þar hafði hurð verið spennt upp og einstaklingur farið inn. Einhverjar skemmdir voru á vettvangi og hafði skiptimynt verið stolið sem og smámynt fyrir hjálparstarfsemi. Þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps við gatnamót í Breiðholti. Báðar bifreiðar voru fluttar af vettvangi með Króki og fundu ökumennirnir báðir fyrir smávægilegum eymslum. Þeir afþökkuðu þó aðstoð sjúkraliðs en tjónvaldur, sem hafði verið sviptur ökuréttindum, er grunaður um akstur gegn rauðu ljósi. Samkvæmt dagbók lögreglu voru tvær bifreiðar stöðvaðar í gærkvöldi þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna.
Lögreglumál Reykjavík Leigubílar Mest lesið Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fannst heill á húfi Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Gjörólíkt gengi frá kosningum Innlent Fella niður 64 milljarða sekt Trump Erlent Fleiri fréttir Þrír laxar reyndust úr sjókví í Dýrafirði Allt stopp á lokametrunum Framboðið „verður að koma í ljós“ Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Sjá meira