Viðskipti erlent

Saka FAA og Boeing um að leyna upp­lýsingum um 737 MAX slysin

Sylvía Hall skrifar
737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa.
737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa. Getty/Mario Tama

Rannsókn sem gerð var fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings segir sýna fram á að bæði flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum (FAA) og flugvélaframleiðandinn Boeing hafi reynt að koma í veg fyrir að mikilvægar upplýsingar um Boeing 737 MAX vélarnar kæmu fram í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa.

Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins

Allar Boeing 737 MAX vélar voru kyrrsettar í mars 2019 eftir tvö flugslys, eitt í Indónesíu og annað í Eþíópu, þar sem samtals 346 létu lífið. Rannsókn á slysunum leiddi í ljós að bæði slys mætti rekja til búnaðar í vélunum, MCAS, sem átti að koma í veg fyrir ofris.

Í skýrslu rannsakenda sem birt var á föstudag er fullyrt að flugmálayfirvöld hafi, í samstarfi við yfirmenn hjá Boeing, ákveðið fyrir fram hver niðurstaða prófana ætti að vera. Átti sú niðurstaða enn frekar að leiða líkur að því mannleg mistök flugmannanna og langur viðbragðstími þeirra hafi spilað stóran þátt í flugslysunum.

„Yfirmenn hjá Boeing þjálfuðu prófunarflugmenn á óviðeigandi hátt fyrir MCAS flugherminn til þess að prófa búnaðinn. Svo virðist sem flugmálayfirvöld og Boeing væru að reyna að leyna mikilvægum upplýsingum sem gátu varpað frekara ljósi á 737 MAX harmleikinn,“ segir í skýrslunni.

Boeing hefur sagst taka ásökunum rannsakenda alvarlega en flugmálayfirvöld hafa neitað því að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað. Fullyrða þau að ýmsar ásakanir í skýrslu samgöngunefndar þingsins sé órökstuddar og rannsókn hafi verið fullnægjandi. Bent hafi verið á ýmis öryggisatriði sem betur hefðu mátt fara við rannsókn þeirra og ekkert dregið undan.


Tengdar fréttir

MAX-vélar Icelandair teknar í notkun næsta vor

Forstjóri Icelandair Group segir að miðað við fjölda flugferða í núverandi ástandi sé Icelandair með nægilega margar vélar til að anna áætluninni. Bandarísk flugmálayfirvöld gáfu MAX-vélunum grænt ljós til að fljúga á ný í gær.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×