Þrír fyrrverandi leikmenn Alfreðs hjá Kiel tilkynntu honum að þeir ætli ekki á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2020 13:31 Hendrik Pekeler (lengst til vinstri) leikur ekki fyrir gamla þjálfarann sinn, Alfreð Gíslason, á HM í Egyptalandi. getty/Mario Hommes Þrír leikmenn Kiel gefa ekki kost á sér í þýska landsliðið fyrir HM í Egyptalandi. Þeir spila því ekki fyrir sinn gamla þjálfara, Alfreð Gíslason, á fyrsta stórmóti hans með þýska liðið.
Patrick Wiencek, Hendrik Pekeler og Steffen Weinhold hafa tilkynnt Alfreð að þeir ætli ekki að spila á heimsmeistaramótinu sem hefst 13. janúar á næsta ári. Alfreð þekkir þremenningana afar vel en hann fékk þá alla til Kiel á sínum tíma. Þeir spila þó ekki fyrir gamla þjálfarann sinn á fyrsta stórmóti hans með þýska landsliðið. Aðeins tveir leikmenn Kiel, hornamaðurinn Rune Dahmke og markvörðurinn Dario Quenstedt, eru eftir í stóra hópnum sem Alfreð valdi fyrir HM. Ef hvorugur þeirra verður í lokahópnum verður það í fyrsta sinn síðan á HM 2001 sem enginn leikmaður Kiel verður í hópi þýska landsliðsins á stórmóti. Danski handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen benti á þetta í dag. After Patrick Wiencek, Hendrik Pekeler and Steffen Weinhold have told the German national coach Alfred Gislason, that...Posted by Rasmus Boysen #6 on Tuesday, December 15, 2020 Þýskaland er með Ungverjalandi, Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðla. Þjóðverjar enduðu í 4. sæti á síðasta heimsmeistaramóti (2019) sem var haldið í Þýskalandi og Danmörku.
HM 2021 í handbolta Þýski handboltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira