Fannst vannærður heima hjá móður sinni eftir þrjá áratugi Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 20:09 Konan og sonur hennar eru búsett í Stokkhólmi. Vísir/Getty Kona í Stokkhólmi er sögð hafa haldið syni sínum læstum inni í íbúð sinni í borginni í þrjá áratugi.
Sonurinn, sem nú er á fimmtugsaldri, fannst liggjandi á gólfi íbúðarinnar og var fluttur á sjúkrahús. Sænska dagblaðið Aftonbladet greinir frá málinu í kvöld. Sonurinn var mjög vannærður þegar hann fannst og í hann vantaði allar tennur, að því er segir í frétt Aftonbladet. Þá hafi málþroski hans virst lélegur og líkami hans þakinn áverkum. Hann var fluttur á sjúkrahús, þar sem hann gekkst undir aðgerð, eftir að skyldmenni gerði lögreglu viðvart. Móðir mannsins var ekki heima þegar ábendingin barst. Samkvæmt upplýsingum blaðsins var íbúðin í slæmu ástandi en maðurinn er sagður hafa fundist liggjandi á teppi á miðju gólfi. Aftonbladet hefur eftir heimildarmönnum sínum að móðurinni hafi verið sjúklega annt um öryggi sonar síns. Hún hafi haldið honum úr skóla frá því hann var barn. Skyldmenni sem Aftonbladet ræðir við grunar að manninum hafi verið haldið í íbúðinni síðan, í allt að þrjá áratugi. Þá hefur blaðið eftir heimildum sínum að málið sé rannsakað sem frelsissvipting. Uppfært 2.12.2020: Konan er ekki lengur grunuð um saknæmt athæfi. Ekkert þykir benda til þess að manninum hafi verið haldið föngnum í íbúðinni. Sjá nánar hér.
Svíþjóð Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira