Rifjuðu upp gamlan KFÍ-leik þar sem sextán ára Siggi Þorsteins lét til sín taka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. nóvember 2020 15:31 Leikmenn KFÍ gera sig tilbúna fyrir leikinn gegn Fjölni 2004. stöð 2 sport
Blómaskeið körfuboltans á Vestfjörðum var í kringum aldamótin þegar KFÍ tefldi fram sterku liði sem komst m.a. í bikarúrslit 1998. Í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudaginn var sýnt skemmtilegt innslag sem Þorsteinn Gunnarsson gerði um KFÍ í upphafi tímabilsins 2004-05. KFÍ tók þá á móti nýliðum Fjölnis sem var þá undir stjórn Benedikts Guðmundssonar, eins af sérfræðingum Domino's Körfuboltakvölds og þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, í 2. umferð Intersport-deildarinnar. KFÍ bauð öllum Ísfirðingum á leikinn. Í liði KFÍ í þessum leik var m.a. miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson, þá aðeins sextán ára. Hann skoraði sex stig og tók níu fráköst. Stigahæstur í liði KFÍ var Joshua Helm með 35 stig. Hann tók einnig sautján fráköst. Darrel Flake skoraði 28 stig og tók átján fráköst fyrir Fjölni sem vann leikinn, 83-104. Jeb Ivey skoraði 24 stig og Nemanja Sovic 21. Allir þessir leikmenn léku lengi á Íslandi. KFÍ vann aðeins tvo af 22 deildarleikjum sínum þetta tímabil og féll í 1. deild. KFÍ leikur núna undir merkjum Vestra. Innslagið og umræður þeirra Kjartans Atla Kjartanssonar, Hermanns Haukssonar og Teits Örlygsson um KFÍ má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Domino's Körfuboltakvöld - Innslag um KFÍ
Dominos-deild karla Íslenski körfuboltinn Körfuboltakvöld Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Sjá meira