Skoðun

Hverjir fengu svo að kaupa íbúðirnar?

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Í júní s.l. barst greinarhöfundi svar félags- og barnamálaráðherra um sölu á fullnustueignum Íbúðalánasjóðs sem átti sér stað á tíu ára tímabili. Ráðherrann hafði þá tekið sér á þriðja ár til að bera fram svar við upphaflegri fyrirspurn og farið með því á svig við lög um þingsköp ogg ráðherraábyrgð. Í svari ráðherrans kom m.a. fram að íbúðirnar hefðu verið seldar á markaðsverði. Eftir á að sannreyna það. Síðan svar ráðherrans barst hefur farið fram nokkur vinna við að gaumgæfa hvaða aðilar keyptu íbúðir af Íbúðalánasjóði. Það er ekki áhlaupsverk enda um rúmar fjögur þúsund íbúðir að ræða. 

Í hópi kaupenda er fjöldi einstaklinga auk marga lögaðila.Það mun því taka nokkurn tíma að finna svar við upphaflegri spurningu. Fljótlega var hafist handa við að kanna eignarhald eins þeirra lögaðila sem keypti um 370 fullnustueignir af Íbúðalánasjóði. Fyrirtækið sem um ræðir er B.K. eignir ehf. Fyrirtækið hefur skipt nokkrum sinnum um nafn síðan árið 2013 og heitir nú Alma-BK. Heimildir herma að nú sé leitast við að selja fyrirtækið úr landi líkt og gert var með fyrirtækið Heimavelli fyrr á árinu. Hvað sem því líður var leitast við að kanna eigendahóp fyrirtækisins á þeim tíma sem kaup félagsins á fullnustueignum átti sér stað. Stuðst var við upplýsingar Skattsins (RSK) sem eru öllum opnar í sumum tilfellum gegn gjaldi. Eigendalisti fyrirtækisins árið 2015 var skv. ársreikningum félagsins og upplýsingum RSK sem hér segir ásamt skýringum greinarhöfundar:

Jon Salisbury 0,73% - Greinarhöfundur veit ekki deili á viðkomandi.

Joseph Stewart 3,64% - Greinarhöfundur veit ekki deili á viðkomandi.

Cappucino Partners 7,28% - Félag á Bresku Jómfrúareyjum. Ekki hefur tekist að hafa uppi á eigendum.

240364-7949 Óli Þór Barðdal 9,23% - framkvæmdastjóri BK eigna árið 2015.

540313-0830 Omega ehf. 27,29% - Eigendur Birgir Már Ragnarsson og Andri Sveinsson, samverkamenn Björgúlfs Thors Björgúlfssonar. Fyrirtækið er skráð til heimilis á Óðinsgötu 7 líkt og Novator.

650313-0620 Olafsson & co ehf. 2,09% - Eigendur Svala Björk Arnardóttir og Þorsteinn Gunnar Ólafsson búsett í Luxembourg.

500811-0130 M ehf. 8,82% - Eigandi Þorsteinn M. Jónsson búsettur í Luxembourg.

410612-1430 JÖKÁ ehf. 14,56% - Eigendur Jóhann Tómas Zimsen búsettur í Svíþjóð og Jón Pétur Zimsen.

650313-0380 HAKK ehf. 5,46% - Eigandi Guðjón Karl Reynisson búsettur í Bretlandi.

450201-2270 Fjallatindar ehf 1,82% - Eigendur Magnús Gunnarsson og Gunnhildur Gunnarsdóttir

521112-0770 BMA ehf. 3,61% - Eigendur Þórdís Edwald, Ármann Harri Þorvaldsson.

081246-2629 Baldur Guðlaugsson 4,55%

630307-1630 Alvar Invest ehf 1,82% - Eigandi Halldór Vilhjálmsson.

521011-0760 147 ehf. 9,10% - Eigendur Gunnar Adam Ingvarsson og Garðar K. Vilhjálmsson.

Eigendalistinn er birtur í upplýsingaskyni. Engar upplýsingar liggja fyrir um söluskilmála eigna sem BK eignir keyptu.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×