Skiptastjóranum vikið úr starfi vegna brots á skyldum Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2020 08:15 Þóroddsstaðir eru byggðir árið 1927 og var upphaflega býli, Er um að ræða þrílyft steinhús, um 400 fermetrar að stærð. Já.is Lárusi Sigurði Lárussyni, lögmanni og stjórnarformanni Menntasjóðs námsmanna, hefur verið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf vegna brots á starfs- og trúnaðarskyldum. Þetta gerði dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur með úrskurði síðastliðinn föstudag. Fréttablaðið segir frá málinu í morgun, en þar er ástæðan sögð vera framferði hans í tengslum við sölu á verðmætustu eign þrotabúsins – fasteigninni Þóroddsstöðum sem stendur við Skógarhlíð í Reykjavík. Selt í gegnum fasteignasölu eiginmanns og samstarfsmanns Lárusar Blaðið vísar í úrskurð dómsins þar sem segir að áður en til gjaldþrotaskipta kom hafi eignin verið til sölu hjá fasteignasölunni Mikluborg. Kauptilboð upp á 200 milljónir hafi borist í eignina og verið samþykkt, en salan ekki gengið í gegn þar sem kaupandi hafi ekki getað fjármagnað kaupin. Menntamálaráðherra skipaði Lárus Sigurð Lárusson stjórnarformann nýs Menntasjóðs námsmanna í sumar.Aðsend Eftir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta og Lárus skipaður skiptastjóri, hafi húsið verið tekið úr sölu hjá fasteignasölunni en selt stuttu síðar til sama kaupanda í gegnum fasteignasölu eiginmanns og samstarfsmanns Lárusar, Sævars Þórs Jónssonar, og þá fyrir 130 milljónir króna. Í svari frá Lárusi Sigurði vegna fréttarinnar, sem sent var fréttastofu um klukkan 8:30 í morgun, segir að Lárus skoði nú að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Hann hafnar því að eiginhagsmunir hafi ráðið för. Ekki réttmætt að gefa honum kost á að ráða bót á starfsháttum Þóroddsstaðir eru byggðir árið 1927 og var upphaflega býli, Er um að ræða þrílyft steinhús, um 400 fermetrar að stærð. Húsið hannaði Guðmundur H. Þorláksson byggingameistari, en í gegnum árin hafa þar meðal annars verið rekin vélavinnslustöð og trésmíðaverkstæði. Fréttablaðið segir dómara hafa komist að því að ekki verði annað séð en að hagsmunir Lárusar hafi ráðið för við ákvörðunina, enda hafi þóknun vegna sölunnar runnið til Sævars Þórs. Sömuleiðis hafi verið sett út á önnur atriði í störfum Lárusar og segir í dómnum að framferði hans sé með þeim hætti að ekki þyki réttmætt að gefa honum kost á að ráða bót á starfsháttum. Því sé honum vikið úr starfi. Fréttastofu hefur borist yfirlýsing frá Lárusi Sigurði Lárussyni vegna fréttar Fréttablaðsins sem lesa má í heild sinni að neðan. Lárus Sigurður Lárusson segist vera að skoða að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar þar sem hann er ekki sammála niðurstöðunni. Hann hefur borið hana undir aðra lögmenn sem hafa tekið undir þá afstöðu hans. ,,Í niðurstöðunni er ekki efast um lagaheimildir skiptastjóra til þess að ráðstafa eignum þrotabúa. Mikið af þeim aðfinnslum sem voru gerðar voru minniháttar og eiga ekki að valda frávikningu skiptastjóra. Ég hafna því að hafa tekið eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni búsins og byggir sú fullyrðing dómsins á huglægu mati á aðstæðum, þar sem m.a. litið er fram hjá áhrifum Covid-19 faraldursins á efnahagslíf þjóðarinnar," segir Lárus. ,,Niðurstaðan byggir líka á röngum upplýsingum um söluþóknun fasteignasala. Í úrskurðinum er á því byggt að fasteignin hafi verið í einkasölu en staðreynd málsins er að hún var í almennri sölu og söluþóknun tók mið af því skv. verðskrá. Þá er það viðtekin venja þegar fasteignasala er rekinn samhliða lögmannstofu að eignir sem þessar séu seldir í gegnum fasteignasölu viðkomandi lögmannsstofu sem annast búskiptin," segir Lárus. Hann segir að fasteignin sem um ræðir sé sérstök og ekki hægt að verðmeta eins og venjulegt íbúðarhúsnæði. Hún lýtur því öðrum lögmálum í sölu enda fjárfesting og verðmæti fjárfestinga tekur sveiflum eftir hreyfingum í efnahagslífi. ,,Ég hef undir höndum tvö verðmót frá fasteignasölum sem styðja söluverð eignarinnar. Ekki var aflað dómkvadds mats um verðmæti eignarinnar. Ástand fasteignarinnar að öðru leyti var afar bágborið og ég hef undir höndum fjölda ljósmynda sem teknar voru af ástandi hennar bæði innandyra og utan en þær lágu ekki fyrir í niðurstöðu héraðsdóms." Lárus telur ennfremur að málsmeðferðin fyrir dómi sé óskýr þar sem aldrei var þingfest ágreiningsmál heldur eingöngu boðað til sáttafunda um aðfinnslurnar. Af þessu leiðir t.a.m. að sannsögli var ekki brýnt fyrir aðilum sem mættu á fund til að lýsa atvikum eins og gert er við vitnaskýrslur. Fréttin hefur verið uppfærð. Reykjavík Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Sjá meira
Lárusi Sigurði Lárussyni, lögmanni og stjórnarformanni Menntasjóðs námsmanna, hefur verið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf vegna brots á starfs- og trúnaðarskyldum. Þetta gerði dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur með úrskurði síðastliðinn föstudag. Fréttablaðið segir frá málinu í morgun, en þar er ástæðan sögð vera framferði hans í tengslum við sölu á verðmætustu eign þrotabúsins – fasteigninni Þóroddsstöðum sem stendur við Skógarhlíð í Reykjavík. Selt í gegnum fasteignasölu eiginmanns og samstarfsmanns Lárusar Blaðið vísar í úrskurð dómsins þar sem segir að áður en til gjaldþrotaskipta kom hafi eignin verið til sölu hjá fasteignasölunni Mikluborg. Kauptilboð upp á 200 milljónir hafi borist í eignina og verið samþykkt, en salan ekki gengið í gegn þar sem kaupandi hafi ekki getað fjármagnað kaupin. Menntamálaráðherra skipaði Lárus Sigurð Lárusson stjórnarformann nýs Menntasjóðs námsmanna í sumar.Aðsend Eftir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta og Lárus skipaður skiptastjóri, hafi húsið verið tekið úr sölu hjá fasteignasölunni en selt stuttu síðar til sama kaupanda í gegnum fasteignasölu eiginmanns og samstarfsmanns Lárusar, Sævars Þórs Jónssonar, og þá fyrir 130 milljónir króna. Í svari frá Lárusi Sigurði vegna fréttarinnar, sem sent var fréttastofu um klukkan 8:30 í morgun, segir að Lárus skoði nú að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Hann hafnar því að eiginhagsmunir hafi ráðið för. Ekki réttmætt að gefa honum kost á að ráða bót á starfsháttum Þóroddsstaðir eru byggðir árið 1927 og var upphaflega býli, Er um að ræða þrílyft steinhús, um 400 fermetrar að stærð. Húsið hannaði Guðmundur H. Þorláksson byggingameistari, en í gegnum árin hafa þar meðal annars verið rekin vélavinnslustöð og trésmíðaverkstæði. Fréttablaðið segir dómara hafa komist að því að ekki verði annað séð en að hagsmunir Lárusar hafi ráðið för við ákvörðunina, enda hafi þóknun vegna sölunnar runnið til Sævars Þórs. Sömuleiðis hafi verið sett út á önnur atriði í störfum Lárusar og segir í dómnum að framferði hans sé með þeim hætti að ekki þyki réttmætt að gefa honum kost á að ráða bót á starfsháttum. Því sé honum vikið úr starfi. Fréttastofu hefur borist yfirlýsing frá Lárusi Sigurði Lárussyni vegna fréttar Fréttablaðsins sem lesa má í heild sinni að neðan. Lárus Sigurður Lárusson segist vera að skoða að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar þar sem hann er ekki sammála niðurstöðunni. Hann hefur borið hana undir aðra lögmenn sem hafa tekið undir þá afstöðu hans. ,,Í niðurstöðunni er ekki efast um lagaheimildir skiptastjóra til þess að ráðstafa eignum þrotabúa. Mikið af þeim aðfinnslum sem voru gerðar voru minniháttar og eiga ekki að valda frávikningu skiptastjóra. Ég hafna því að hafa tekið eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni búsins og byggir sú fullyrðing dómsins á huglægu mati á aðstæðum, þar sem m.a. litið er fram hjá áhrifum Covid-19 faraldursins á efnahagslíf þjóðarinnar," segir Lárus. ,,Niðurstaðan byggir líka á röngum upplýsingum um söluþóknun fasteignasala. Í úrskurðinum er á því byggt að fasteignin hafi verið í einkasölu en staðreynd málsins er að hún var í almennri sölu og söluþóknun tók mið af því skv. verðskrá. Þá er það viðtekin venja þegar fasteignasala er rekinn samhliða lögmannstofu að eignir sem þessar séu seldir í gegnum fasteignasölu viðkomandi lögmannsstofu sem annast búskiptin," segir Lárus. Hann segir að fasteignin sem um ræðir sé sérstök og ekki hægt að verðmeta eins og venjulegt íbúðarhúsnæði. Hún lýtur því öðrum lögmálum í sölu enda fjárfesting og verðmæti fjárfestinga tekur sveiflum eftir hreyfingum í efnahagslífi. ,,Ég hef undir höndum tvö verðmót frá fasteignasölum sem styðja söluverð eignarinnar. Ekki var aflað dómkvadds mats um verðmæti eignarinnar. Ástand fasteignarinnar að öðru leyti var afar bágborið og ég hef undir höndum fjölda ljósmynda sem teknar voru af ástandi hennar bæði innandyra og utan en þær lágu ekki fyrir í niðurstöðu héraðsdóms." Lárus telur ennfremur að málsmeðferðin fyrir dómi sé óskýr þar sem aldrei var þingfest ágreiningsmál heldur eingöngu boðað til sáttafunda um aðfinnslurnar. Af þessu leiðir t.a.m. að sannsögli var ekki brýnt fyrir aðilum sem mættu á fund til að lýsa atvikum eins og gert er við vitnaskýrslur. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lárus Sigurður Lárusson segist vera að skoða að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar þar sem hann er ekki sammála niðurstöðunni. Hann hefur borið hana undir aðra lögmenn sem hafa tekið undir þá afstöðu hans. ,,Í niðurstöðunni er ekki efast um lagaheimildir skiptastjóra til þess að ráðstafa eignum þrotabúa. Mikið af þeim aðfinnslum sem voru gerðar voru minniháttar og eiga ekki að valda frávikningu skiptastjóra. Ég hafna því að hafa tekið eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni búsins og byggir sú fullyrðing dómsins á huglægu mati á aðstæðum, þar sem m.a. litið er fram hjá áhrifum Covid-19 faraldursins á efnahagslíf þjóðarinnar," segir Lárus. ,,Niðurstaðan byggir líka á röngum upplýsingum um söluþóknun fasteignasala. Í úrskurðinum er á því byggt að fasteignin hafi verið í einkasölu en staðreynd málsins er að hún var í almennri sölu og söluþóknun tók mið af því skv. verðskrá. Þá er það viðtekin venja þegar fasteignasala er rekinn samhliða lögmannstofu að eignir sem þessar séu seldir í gegnum fasteignasölu viðkomandi lögmannsstofu sem annast búskiptin," segir Lárus. Hann segir að fasteignin sem um ræðir sé sérstök og ekki hægt að verðmeta eins og venjulegt íbúðarhúsnæði. Hún lýtur því öðrum lögmálum í sölu enda fjárfesting og verðmæti fjárfestinga tekur sveiflum eftir hreyfingum í efnahagslífi. ,,Ég hef undir höndum tvö verðmót frá fasteignasölum sem styðja söluverð eignarinnar. Ekki var aflað dómkvadds mats um verðmæti eignarinnar. Ástand fasteignarinnar að öðru leyti var afar bágborið og ég hef undir höndum fjölda ljósmynda sem teknar voru af ástandi hennar bæði innandyra og utan en þær lágu ekki fyrir í niðurstöðu héraðsdóms." Lárus telur ennfremur að málsmeðferðin fyrir dómi sé óskýr þar sem aldrei var þingfest ágreiningsmál heldur eingöngu boðað til sáttafunda um aðfinnslurnar. Af þessu leiðir t.a.m. að sannsögli var ekki brýnt fyrir aðilum sem mættu á fund til að lýsa atvikum eins og gert er við vitnaskýrslur.
Reykjavík Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Sjá meira