Stórleikur hjá Aroni í öruggum sigri Barcelona á Álaborg Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2020 19:46 Leikmenn Álaborgar gátu einfaldlega ekki stöðvað Aron í kvöld. Sama hversu margir reyndu í einu. @FCBhandbol
Magnað gengi handboltaliðs Barcelona virðist engan endi ætla að taka en liðið vann Álaborg sannfærandi á heimavelli sínum í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Lokatölur 42-33 og kom íslenski landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson að tíu mörkum í liði Börsunga. Mikið var skorað í leiknum strax frá upphafi og voru gestirnir mjög sprækir í fyrri hálfleik. Aðeins munaði tveimur mörkum á liðunum er leikurinn var hálfnaður. Staðan þá 20-18 Börsungum í vil og Danirnir inn í leiknum. Í síðari hálfleik var hins vegar annað upp á teningnum. Barcelona gekk á lagið og einfaldlega stakk gestina af á endanum. Munurinn var því orðinn níu mörk er flautan gall og leiknum lauk. Lokatölur 42-33 Börsungum í vil sem eru með fullt hús stiga bæði í Meistaradeildinni sem og heima í spænsku úrvalsdeildinni. [ LIVE] R6 @ehfcl Barça 42-33 Aalborg Haandbold Full time! / Final del partit! Palau Blaugrana #ForçaBarça #HandbolLive pic.twitter.com/A2fFaJetAB— Barça Handbol (@FCBhandbol) October 29, 2020 Aron skoraði fimm mörk í kvöld ásamt því að leggja upp önnur fimm. Enginn leikmaður Barcelona kom að fleiri mörkum. Barcelona er nú með fimm sigra eftir fimm leiki í B-riðli á meðan Álaborg hefur unnið fjóra og tapað tveimur. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari danska liðsins.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira