Erlent

Bjóða um­bun í þeirri von að leysa morð á þýskum bak­poka­ferða­langi

Atli Ísleifsson skrifar
Simone Strobel var myrt í Ástralíu árið 2005.
Simone Strobel var myrt í Ástralíu árið 2005.

Þýski leikskólakennarinn Simone Strobel var myrt í Ástralíu árið 2005 og enn hefur enginn verið ákærður í málinu. Áströlsk yfirvöld hafa nú boðið eina milljón Ástralíudala til þess sem kemur fram með upplýsingar sem leiðir til þess að málið leysist. Upphæðin svarar til um 100 milljóna króna.

ABC segir frá málinu, en síðast sást til Strobel, sem var frá Bæjaralandi, í hjólhýsagarði í smábænum Lismore á austurströnd Ástralíu eftir að hafa skemmt sér með kærasta sínum og vinum í febrúar 2005. Lík hinnar 25 ára Strobel fannst svo falið undir pálmalaufum á nálægum íþróttavelli sex dögum síðar.

Saksóknarar og lögregla frá bæði Ástralíu og heimabæ hennar, Würzburg, hafa unnið saman að því að leysa málið, en enn hefur engin ákæra verið gefin út.

Þurfa aðstoð

Lögregla í Nýju Suður-Wales greindi frá því í dag að til stæði að bjóða þeim sem kæmi með upplýsingar sem leiddu til ákæru og sakfellingar í málinu umbun að upphæð einnar milljónar Ástralíudala.

„Við höfum haldið áfram að rannsaka sönnunargögn og rætt við vitni síðustu fimmtán árin en við þurfum frekari hjálp frá almenningi til að komast endanlega að því hvað kom fyrir Simone,“ sagði Scott Tanner hjá lögreglunni í Richmond.

Tobias Suckfuell var kærasti Strobel á þeim tíma er hún var myrt.Getty

Fólk sem situr á upplýsingum

Lögregla telur víst að fólk bæði í Ástralíu og Þýskalandi sitji enn á upplýsingum sem ekki hafi verið komið á framfæri. „Við beinum því til þessa fólks að stíga fram, þar sem það er einungis tímaspursmál þar sem lögregla mun banka á hurð ykkar og þú verður þá dregin til ábyrgðar vegna þinna gjörða.“

Umbun sem þessi hefur áður reynst áströlsku lögreglunni vel, en fyrr á árinu tókst lögreglu þar í landi að leysa þrjátíu ára gamalt morðmál þegar tveimur milljónum Ástralíudala var boðið þeim sem kæmi með upplýsingar sem myndu leiða til handtöku og sakfellingar vegna morðsins á Bandaríkjamanninum Scott Johnson árið 1988.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×