Hörð toppbarátta milli Dusty, XY Esport og Fylkis Snorri Már Vagnsson skrifar 5. október 2020 21:01
5. umferð Vodafone deildarinnar í League of Legends var spiluð í gærkvöldi og var mikil spenna í loftinu. Við upphaf umferðarinnar sat Dusty Academy á toppi deildarinnar og XY Esports fylgdu þeim fast á eftir. XY þurftu að finna sigur í leik sínum til að halda sér í toppbaráttunni, sem og þeir gerðu þegar þeir sigðuru VITA. Fylkir vann báða sína leiki gegn Excess Success og KR LoL. Einnig tókst Pongu að valta yfir lið Excess Success þrátt fyrir slæmt gengi síðustu leiki. XY Esports vs. VITA Í fyrsta leik kvöldsins mættust XY Esports og VITA. Í leiknum voru karakterar sem þrífast í seinustu mínútum leikja eins og Yone, Gangplank og Kai’sa, þannig búast mátti við löngum leik. Lítið gerðist snemma leiks, eins og við mátti búast. Á tólftu mínútu náðu XY góðu spili á botninum með hjálp Adda, sem gaf þeim tvö kills og dreka. Áfram héldu XY menn að spila í kringum botninn á kortinu og þeim tókst að mynda forskot á VITA-menn. Bad Habit, support-spilari XY Esports, spilaði leikinn afar vel og náði að vinna marga slagi með hæfileikum sínum á Leonu. Á 23. mínútu braust út risaslagur hjá dreka sem VITA unnu en XY náði drekasálinni. XY náðu Baróninum tveimur mínútum seinna en töpuðu öðrum slag og VITA komust þrjúþúsund gulli yfir XY Esports. Jammzzyy, jungler-spilari XY spilaði þó afar vel úr aðstæðum og náði að fella tvo leikmenn VITA sem tryggði þeim Elderdrekann og tvöþúsund gulla forskot. Á 34. mínútu náði Jammzzyy að snúa bardaga XY í hag og þeir kláruðu leikinn. Excess Success vs. Fylkir Önnur viðureign kvöldsins var á milli Excess Success og Fylkis. Yordle Stomper, ADC spilari Fylkis valdi Samiru og var þetta fyrsti leikurinn sem hún er spiluð í Vodafone deildinni. Fylkir komust yfir afar snemma í leiknum og voru sterkari aðilinn allan leikinn. Með þrjá turna og tvo dreka í farteskinu á fimmtándu mínútu fóru þeir að leita að leiðum til að ljúka leiknum. Eftir að taka Baróninn og ná að fella leikmenn Excess Success tóku Fylkir dreka á 25. mínútu og kláruðu leikinn eftir að vinna annan slag. KR LoL vs. Fylkir Í þriðju viðureign kvöldsins mættust KR LoL og Fylkir. Leikurinn var afar jafn til að byrja með, lítill gullmunur var á liðunum en Fylkir tóku tvo dreka meðan KR var tvöþúsund gulli á undan. Fylkir náði þó að taka Baróninn þökk sé pressu frá Tartaran og Leiftri í botninum sem vann Fylki inn tíma. Leiftur á Camille valtaði svoleiðis yfir KR-menn í þeirra eigin base og eftir aðeins 22. mínútna leik tókst Fylki að brjóta niður varnir KR og sigruðu svo leikinn. Pongu vs. Excess Success Síðasti leikur kvöldsins var á milli Pongu og Excess Success. Pongu voru að leitast við að snúa gengi sínu við en þeir sátu í neðsta sæti deildarinnar fyrir leik. Þvert gegn undanförnu gengi Pongu sýndu þeir heldur betur að þeir eiga roð í hin liðin og voru með 13 kills og 7 þúsund gulli á undan Excess Success á tólftu mínútu. Allir leikmenn Pongu áttu stórgóðan leik og lítið hægt að setja út á spil þeirra. Forysta þeirra jókst eftir því sem leið lengra á leikinn, en staðan var 20-2 í kills á fimmtándu mínútu. Pongu tóku inhibitor Excess-manna með hjálp Skelrúnar og þá varð niðurstaða leiksins orðin nokkuð ljós. Eftir aðeins laufléttan 21. mínútu leik tókst Pongu að sigra Excess Success með ótrúlegum yfirburðum, tólfþúsund gulli á undan og með 32 kills gegn 6 kills Excess-manna. Spenna á toppnum Eftir 5. umferð Vodafone deildarinnar deila Dusty Academy, XY Esports og Fylkir efsta sætinu með 14 stig hvert. Þó á Dusty Academy enn eftir að spila tvo leiki í umferðinni en XY eiga einn leik eftir. VITA situr í fjórða sæti með 10 stig en Excess Success eru í fimmta sæti með 8 stig. KR LoL eru í sjötta sæti með 6 stig en Pongu náðu að slíta sig frá Make It Quick með sigri sínum í kvöld með 4 stig. Make It Quick geta þó enn komist yfir Pongu ef þeir vinna báða sína leiki í kvöld.
Fylkir Dusty Vodafone-deildin League of Legends KR Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ungmennamótið í rafíþróttum hafið Fjórða vika Rocket League deildarinnar í fullum gangi í kvöld 6. umferð GR Verk deildarinnar lokið: Tæknilegir örðugleikar í deildinni Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Úrslitin ráðast í kvöld: FSu gefst tækifæri á að hreppa sinn fyrsta FRÍS bikar Mikil spenna í GR Verk deildinni: Þórsarar með stórsigur gegn DUSTY GR Verk deildin heldur áfram í kvöld Þórsarar og Dusty enn jafnir á toppnum Íslenska Rocket League-deildin farin af stað GR Verk-deildin í beinni: Þórsarar enn ósigraðir Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Tækniskólanum í úrslitum FSu og FG keppast um úrslitasæti gegn Tækniskólanum Þórsarar enn ósigraðir á tímabilinu Tækniskólinn kominn í úrslit Framhaldsskólaleikanna Fragg-bræðurnir efna til sumarmóts NOCCO Dusty eru Stórmeistarar í Counter-Strike Stórmeistaramótið í beinni: Úrslitin ráðast í kvöld NOCCO Dusty mæta Sögu í úrslitum Saga tryggði sig í úrslit með sigri á deildarmeisturum Þórs Stórmeistaramótið í beinni: Hverjir komast í úrslit í kvöld? Varaþingmaður Viðreisnar á Stórmeistaramótinu í Counter-Strike Þrjú af fjórum liðum komin í fjögurra liða úrslit Stórmeistaramótið í beinni: Útsláttarkeppnin hefst í kvöld Úrslit í íslensku Overwatch-deildinni um helgina Átta lið komin í útsláttarkeppni Stórmeistaramótsins Stórmeistaramótið í beinni: Útsláttarkeppnin á næsta leiti FH, Aurora og SAGA tryggja sig áfram Stórmeistaramótið í beinni: Tólf lið spila í kvöld Íslendingur í átta liða úrslitum á Evrópumóti í einum vinsælasta tölvuleik heims Dusty og Þórsarar enn ósigraðir á Stórmeistaramótinu Sjá meira