Handbolti

Valur með talsvert meira fjármagn en við

Andri Már Eggertsson skrifar
Kristinn Björgólfsson, þjálfari ÍR, telur fjármagn Vals spila inn í.
Kristinn Björgólfsson, þjálfari ÍR, telur fjármagn Vals spila inn í. Vísir/ÍR

Valur pakkaði ÍR saman í 2. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Ljóst var að róðurinn yrði þungur fyrir Breiðhyltinga en 19 marka sigur Vals var ekki eitthvað sem sérfræðingarnir sáu fyrir.

Lokatölur 43-24 og ljóst að ÍR á langan vetur framundan.

„Valur voru frábæir á öllum sviðum í dag. Það sem ég lagði upp með fyrir leikinn var að við myndum koma boltanum á markið og skila okkur til baka en við komum boltanum bara á markið,” sagði Kristinn og bætti við að þeir klukkuðu aldrei Valsmenn heldur.

Það sást strax á upphafs mínútum leiksins að mikill getu munur er á liðunum sem skilaði 43 mörkum frá Val í 19 marka sigri.

„Það er valinn maður í hverri stöðu í Vals liðinu og reikna ég með að fjárhagurinn hjá Val sé 15 falt stærri en hjá okkur í ÍR sem hlýtur að vera munurinn á liðunum.”

ÍR voru sjálfum sér verstir þar sem þeir gáfur Val alltof oft auðveld mörk úr hraðahlaupum þar sem þeir töpuðu margsinnis boltanum auðveldlega.

„Þetta voru alltof margir tæknifeilar og ef þú gerir þetta á móti Val þá fer þetta svona. Valsmenn voru frábærir þeir skora líklega um 20 mörk úr hraðahlaupum sem bara frábær lið gera þótt við hefðum oft misst boltann,” sagði Kristinn sem hrósaði Val fyrir að taka verkefninu alvarlega.

Þó það séu bara tvær umferðir búnar hjá ÍR þá er ekki mikil ástæða fyrir bjartsýni um að liðið haldi sér uppi og er mikil hætta á að róðurinn verði ansi þungur þegar líða fer á mótið.

„Ég hef ekki áhyggjur af því að róðurinn sé orðinn þungur fyrir okkur við erum búnir með tvo leiki á móti tveimur af efstu fjórum liðunum landsins, þó við höfum tapað með sjö og nítján mörkum þá skiptir það litlu máli því það er nýr dagur á morgunn og leikur í næstu viku,” sagði Kristinn og talaði um að liðið getur tekið stig á móti mörgum liðum en þó ekki með svona leik því frammistaðan var enginn.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Valur - ÍR 43-24 | Valur kjöldró ÍR að Hlíðarenda

Breiðhyltingar vilja eflaust gleyma ferð sinni á Hlíðarenda í kvöld. Þeir ætluðu að sýna Völsurum hvar Davíð keypti ölið en það gekk einfaldlega ekki upp. Valur vann 19 marka sigur og ljóst að ÍR-ingar verða í miklum vandræðum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×