Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild kvenna 2020-21: Frostavetur í Firðinum

Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
onnur
mynd/facebook-síða handknattleiksdeildar fh/vilhelm

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild kvenna en keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum föstudaginn 11. september.

Fyrst skoðum við liðin sem við teljum að muni reka lestina í Olís-deildinni í vetur og berjist um að halda sér uppi.

Að okkar mati stefnir allt í erfiðan vetur hjá Hafnarfjarðarliðunum, FH og Haukum. FH-ingar eru nýliðar í Olís-deildinni á meðan Haukar hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku og eru með veikara lið en á síðasta tímabili.

Hildur Guðjónsdóttir kom til FH frá Stjörnunni.mynd/facebook-síða handknattleiksdeildar fh

FH í 8. sæti: Brött brekka hjá nýliðunum

Eftir fjögurra ára fjarveru snýr FH aftur í Olís-deildina. FH-ingar voru í 2. sæti Grill 66-deildarinnar þegar tímabilið var blásið af vegna kórónuveirufaraldursins en var úthlutað sæti í Olís-deildinni.

Ljóst er að tímabilið sem framundan er verður krefjandi fyrir FH. En liðið ætlar að gefa allt í þetta og hefur m.a. sótt sænskan leikstjórnanda og tvo leikmenn frá Stjörnunni í sumar. 

FH verður hins vegar án síns markahæsta leikmanns á síðasta tímabili, hornamannsins Ragnheiðar Tómasdóttur sem er farin til Slóvakíu í læknanám.

Þjálfari FH er Jakob Lárusson en hann er á sínu öðru tímabili með liðið. Í það vantar sárlega örvhenta leikmenn. Þá er reynslan ekki mikil og hætt við að stoðirnar séu ekki nógu styrkar. Gaman verður að fylgjast með Emilíu Ósk Steinarsdóttur sem er afar lofandi leikmaður.

Hversu langt síðan að FH ...

  • ... varð Íslandsmeistari: 38 ár (1982)
  • ... varð deildarmeistari: Aldrei
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 20 ár (2000)
  • ... varð bikarmeistari: 39 ár (1981)
  • ... komst í bikarúrslit: 11 ár (2009)
  • ... komst í úrslitakeppni: 6 ár (2014)
  • ... komst í undanúrslit: 16 ár (2004)
  • ... komst í lokaúrslit: 21 ár (1999)
  • ... féll úr deildinni: 4 ár (2016)
  • ... kom upp í deildina: 0 ár (2020)

Gengi FH í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 B-deild (2. sæti)
  • 2018-19 B-deild (6. sæti)
  • 2017-18 B-deild (4. sæti)
  • 2016-17 B-deild (3. sæti)
  • 2015-16 14. sæti í deildinni
  • 2014-15 10. sæti í deildinni
  • 2013-14 6. sæti í deildinni
  • 2012-13 6. sæti í deildinni
  • 2011-12 9. sæti í deildinni

Gengi FH í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 B-deild
  • 2017-18 B-deild
  • 2016-17 B-deild
  • 2015-16 Ekki í úrslitakeppni
  • 2014-15 Ekki í úrslitakeppni
  • 2013-14 Átta liða úrslit
  • 2012-13 Átta liða úrslit
  • 2011-12 Ekki í úrslitakeppni

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

FH-liðið spilaði í Grill 66 deild kvenna og ekki til tölur.

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Zandra Jarvin frá Sparvagen (Svíþjóð)
  • Emilie Vagnes Jacobsen frá Ålesund (Noregi)
  • Hildur Guðjónsdóttir frá Stjörnunni
  • Írena Björk Ómarsdóttir frá Stjörnunni
  • Emma Havin Sardardóttir frá Gróttu

Farnar:

  • Dröfn Haraldsdóttir
  • Embla Jónsdóttir til Þýskalands
  • Diljá Sigurðardóttir
  • Ragnheiður Tómasdóttir í nám erlendis

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Hrafnhildur Anna Þorsteinsdóttir
  • Vinstra horn: Aþena Arna Ágústsdóttir
  • Vinstri skytta: Britney Cots
  • Miðja: Zandra Jarvin
  • Hægri skytta: Emilía Ósk Steinarsdóttir
  • Hægra horn: Andrea Valdimarsdóttir
  • Lína: Fanney Þóra Þórsdóttir
Britney Cots kom til FH 2018.mynd/heimasíða fh

Verður að eiga gott tímabil

Franska skyttan Britney Cots er að hefja sitt þriðja tímabil með FH. Hún er algjör lykilmaður í liðinu og gengi þess stendur og fellur að stórum hluta með frammistöðu hennar. Cots er mikilvæg á báðum endum vallarins. Á síðasta tímabili skoraði hún 65 mörk í nítján leikjum í Grill 66-deildinni.

Sænska skyttan Sara Odden er á sínu öðru tímabili með Haukum.vísir/bára

Haukar í 7. sæti: Búið að plokka skrautfjaðrirnar af Haukum

Eftir að hafa verið á bestu liða landsins í nokkur ár tóku Haukar smá dýfu á síðasta tímabili. Þegar keppni var hætt var liðið í 5. sæti Olís-deildarinnar, fjórum stigum frá sæti í úrslitakeppninni.

Haukar misstu sterka leikmenn fyrir síðasta tímabil og það sama gerðist fyrir þetta tímabil. Haukar eru búnir að missa aðalmarkvörðinn sinn, leikstjórnandann og besta varnarmanninn. Í staðinn fengu Haukar tvo leikmenn frá Grill 66-deildarliði Fjölnis og færeyskan landsliðsmarkvörð.

Haukar skiptu líka um þjálfara eftir síðasta tímabil. Árni Stefán Guðjónsson hætti og hóað var í gömlu kempuna Gunnar Gunnarsson. Hans bíður krefjandi verkefni í vetur og ljóst að brekkan gæti orðið brött fyrir Hauka.

Byrjunarlið Hauka er nokkuð frambærilegt og ef meiðsladraugurinn tekur ekki hús á Ásvöllum gæti liðið komist í úrslitakeppnina. En þá þarf nánast allt að ganga upp.

Hversu langt síðan að Haukaliðið ... .

  • .. varð Íslandsmeistari: 15 ár (2005)
  • ... varð deildarmeistari: 4 ár (2016)
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 3 ár (2017)
  • ... varð bikarmeistari: 13 ár (2007)
  • ... komst í bikarúrslit: 2 ár (2018)
  • ... komst í úrslitakeppni: 1 ár (2019)
  • ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
  • ... komst í lokaúrslit: 15 ár (2005)
  • ... féll úr deildinni: 30 ár (1990)
  • ... kom upp í deildina: 28 ár (1992)

Gengi Hauka í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 5. sæti í deildinni
  • 2018-19 4. sæti í deildinni
  • 2017-18 4. sæti í deildinni
  • 2016-17 3. sæti í deildinni
  • 2015-16 Deildarmeistari
  • 2014-15 5. sæti í deildinni
  • 2013-14 7. sæti í deildinni
  • 2012-13 8. sæti í deildinni
  • 2011-12 8. sæti í deildinni

Gengi Hauka í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 Undanúrslit
  • 2017-18 Undanúrslit
  • 2016-17 Undanúrslit
  • 2015-16 Undanúrslit
  • 2014-15 Átta liða úrslit
  • 2013-14 Átta liða úrslit
  • 2012-13 Átta liða úrslit
  • 2011-12 Ekki í úrslitakeppni
View this post on Instagram

Síðustu daga hafa ungar Haukastelpur skrifað undir sinn fyrsta samning við Handknattleiksdeild Hauka. Þetta eru þær Agnes Ósk Viðarsdóttir, Emilía Katrín Matthíasdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Thelma Melsteð. Allar þessar stelpur eru hluti af sterkum 2004 árgangi Hauka sem tryggði sér deildarmeistaratilitllinn í 4. fl kvenna á liðnu tímabili en þær eru einnig allar hluti af U-16 ára landsliði Íslands. Nokkar af stelpunum hafa nú þegar spilað sínar fyrstu mínútur í meistaraflokki á liðnu tímabili og er framtíðin sannarlega björt á Ásvöllum. Til hamingju stelpur! ÁFRAM HAUKAR #haukarfélagiðmitt #handbolti #olisdeildin #seinnibylgjan

A post shared by Haukar Topphandbolti (@haukar_handbolti) on

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Hauka 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 7. sæti (22,1)
  • Skotnýting - 6. sæti (49,2%)
  • Vítanýting - 8. sæti (72,1%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (41)
  • Stoðsendingar í leik - 7. sæti (6,5)
  • Tapaðir boltar í leik - 5. sæti (12,9)

Vörn og markvarsla Hauka 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 5. sæti (24,9)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 4. sæti (32,3%)
  • Varin víti - 2. sæti (14)
  • Stolnir boltar - 4. sæti (78)
  • Varin skot í vörn - 5. sæti (35)
  • Lögleg stopp í leik - 5. sæti (22,7)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnar:

  • Annika Fríðheim Petersen frá Færeyjum
  • Guðrún Jenný Sigurðardóttir frá Fjölni
  • Karen Birna Aradóttir frá Fjölni

Farnar:

  • Alexandra Líf Arnarsdóttir til HK
  • Saga Sif Gísladóttir til Vals
  • Guðrún Erla Bjarnadóttir til Fram

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Annika Fríðheim Petersen
  • Vinstra horn: Birta Lind Jóhannsdóttir
  • Vinstri skytta: Sara Odden
  • Miðja: Karen Helga Díönudóttir
  • Hægri skytta: Berta Rut Harðardóttir
  • Hægra horn: Hekla Rún Ámundadóttir
  • Lína: Rakel Sigurðardóttir
Berta Rut Harðardóttir skoraði 88 mörk í átján leikjum í Olís-deild kvenna á síðasta tímabili.vísir/bára

Verður að eiga gott tímabil

Berta Rut Harðardóttir var markahæsti leikmaður Hauka á síðasta tímabili. Hún er gríðarlega efnileg skytta með góða skothönd en mætti bæta fleiri stoðsendingum við leik sinn. Haukar treysta á framlag frá Bertu og hún þarf að eiga A+ vetur, sérstaklega í ljósi þess hversu mikið liðið hefur misst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×