Innlent

Enginn greindist með veiruna innanlands í gær

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær.
Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær, þann 6. september, samkvæmt tölulegum upplýsingum á covid.is.

Þá greindust fimm með veiruna á landamærunum, þar af var einn með virkt smit og er beðið eftir mótefnamælingu hjá þremur. Þá greindist einn með veiruna í seinni skimun eftir að hafa komið hingað til lands.

123 sýni voru tekin innanlands og 1250 sýni á landamærunum.

76 eru í einangrun og 307 í sóttkví. Nýgengi innanlandssmita er 12,5 og nýgengi smita við landamærin 7,4.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×