Innlent

Slasaðist á fjór­hjóli sunnan við Mý­vatn

Atli Ísleifsson skrifar
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út.
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitir á Norðurlandi eystra voru kallaðar út á tíunda tímanum í morgun vegna fjórhjólaslyss á hálendinu sunnan við Mývatn. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 

„Maður slasaðist á fjórhjóli og er björgunarsveitarfólk á leiðinni á vettvang með sjúkraflutningamenn með í för,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×