Handbolti

Átján titla munur á undanúrslitaleikjunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valskonur eiga titil að verja í bikarkeppninni.
Valskonur eiga titil að verja í bikarkeppninni. vísir/bára

Það ræðst í kvöld hvaða lið leika til úrslita í Coca Cola-bikar kvenna í handbolta. Í fyrri undanúrslitaleiknum mætast KA/Þór og Haukar og í þeim seinni Valur og Fram.

Sigurhefð liðanna í seinni undanúrslitaleiknum eru öllu meiri en hjá liðunum í þeim fyrri.

Fram er langsigursælasta liðið í sögu bikarkeppni kvenna með 15 titla. Valur hefur unnið sjö bikartitla og samtals eru Reykjavíkurfélögin því með 22 af 44 bikartitlum kvennamegin.

Haukar hafa fjórum sinnum orðið bikarmeistarar í kvennaflokki en KA/Þór aldrei. Haukar urðu síðast bikarmeistarar 2007 þegar liðið vann Gróttu í úrslitaleik, 22-26.

Það er því 18 bikartitla munar á liðunum í undanúrslitaviðureignunum sem fara fram í kvöld.

Valur er ríkjandi bikarmeistari. Í fyrra vann Valur þriggja marka sigur á Fram í bikarúrslitum, 21-24.

Leikur KA/Þórs og Hauka hefst klukkan 18:00 og klukkan 20:30 er komið að viðureign Vals og Fram. Báðir leikirnir verða í beinni textalýsingu á Vísi.

Flestir bikarmeistaratitlar í kvennaflokki

15 Fram (1978, 1979, 1980, 1982, 1984, 1985, 1986, 1987, 1990, 1991, 1995, 1999, 2010, 2011, 2018)

8 Stjarnan (1989, 1996, 1998, 2005, 2008, 2009, 2016, 2017)

7 Valur (1988, 1993, 2000, 2012, 2013, 2014, 2019)

4 Haukar (1997, 2003, 2006, 2007

3 ÍBV (2001, 2002, 2004)

2 Víkingur (1992, 1994)


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×