Þjálfari Stjörnunnar sagðist vera að fara mæta Leikfélagi Vestmannaeyja í bikarúrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2020 09:30 Rúnar Sigtryggsson átti erfitt með að halda andlitinu eftir að hann skírði ÍBV liðið upp á nýtt. Skjámynd/RÚV
Stjarnan er komið í bikarúrslitaleikinn í Coca Cola bikarnum í handbolta eftir sigur á Aftureldingu í undanúrslitunum í gær. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki lengi að byrja sálfræðistríðið fyrir úrslitaleikinn á morgun. Stjarnan vann 22-21 endurkomusigur á Aftureldingu í sínum undanúrslitaleik en áður höfðu Eyjamenn slegið út Hauka í öðrum hörkuleik, 27-26. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, var tekin í sjónvarpsviðtal á RÚV strax eftir leikinn. Hann var ekki lengi að skjóta á mótherja Stjörnunnar í bikarúrslitaleiknum þegar hann var spurður út í leikinn á móti ÍBV. Gunnar Birgisson tók viðtalið fyrir Rúv og spurði Rúnar um það hvort hann væri farinn eitthvað að kortleggja ÍBV-liðið í huganum fyrir bikarúrslitaleikinn. „Leikfélag Vestmannaeyja?“ svaraði Rúnar Sigtryggsson og brosti. Hann átti síðan mjög erfitt með sig eftir að hann skírði ÍBV liðið upp á nýtt. „Við þurfum að pæla vel í því hvernig við tæklum þá,“ sagði Rúnar hálfhlæjandi. Rúnar er þarna augljóslega að skjóta á Eyjamenn fyrir að vera með leikaraskap inn á handboltavellinum. Það verður vissulega fróðlegt að sjá hvernig Eyjamenn taka þessu skoti en það hefur hingað til ekki boðað gott að kveikja eldana í Eyjum, þar sem hjartað slær. Stjarnan hefur ekki unnið bikarinn í þrettán ár og komst síðast í bikarúrslitin fyrir sjö árum síðan. ÍBV vann bikarinn síðast fyrir tveimur árum.
Olís-deild karla Vestmannaeyjar Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira