Að hlusta á ungmenni Sigurþóra Bergsdóttir skrifar 15. febrúar 2020 08:00 Bergið headspace er stuðnings og ráðgjafarþjónusta fyrir ungt fólk, undir 25 ára í fallegu húsi við Suðurgötu í Reykjavík. Við bjóðum ungmennum að koma til okkar, hitta fagmenntaðan ráðgjafa og tala um hvað það er sem á þeim liggur. Þannig erum við til staðar fyrir ungt fólk á þeirra forsendum. Það kostar ekkert að koma til okkar, það má koma eins oft og ungmennið telur sig þurfa og biðtíminn er yfirleitt bara nokkrir dagar. Við skilgreinum ekki með neinum hætti af hverju ungmennu koma til okkar, ekki þarf tilvísanir, greiningar eða neinn skilgreindan vanda. Ef þú sem ung manneskja hefur þörf fyrir að ræða eitthvað þá getur þú hringt, sent skilaboð eða skráð þig í þjónustu á heimasíðu okkar bergid.is. Okkar megin nálgun er hlustun. Við hlustum á ungmenni og mætum þeim á þeirra stað á þeirra forsendum. Það hefur verið okkar stærsti lærdómur síðustu 5 mánuði, gildi þess að setjast í sig, bregðast ekki við, reyna ekki að leysa málin. Einfaldlega hlusta og taka inn og gefa ungmennum pláss í sínum tilfinningum. Síðan getum við í rólegheitum greint með þeim vanda, kannski hjálpað þeim að finna sín bjargráð, jafnvel ef þau vilja hjálpað þeim að finna frekari hjálp sem aðrir bjóða s.s. geð- eða fíknimeðferðir. Í síðustu viku náðum við þeim áfanga að taka á móti ungmenni númer 100 í þjónustu til okkar eftir 5 mánaða starf. Þessi ungmenni eru eins ólík og þau eru mörg. Flest eru í skóla eða vinnu, í íþróttum eða tómstundum. Þau eru mörg kvíðin, streitt og þreytt. Stór hópur sem til okkar kemur hefur veikt bakland til dæmis koma 42% okkar ungmenna af heimilum þar sem eru veikindi s.s. fíkn eða geðsjúkdómar hjá foreldrum eða systkinum. Þau eru að standa sig vel, láta allt ganga upp en upplifa vanlíðan og streitu. Oft átta þau sig ekki á áhrifum þess að koma úr slíku umhverfi. Við gefum þeim rödd og reynum að efla þau í sínum styrkleikum. Við getum líka hjálpað með því að virkja umhverfi þeirra s.s. barnavernd, heilbigðisþjónustu eða félagsþjónustu. Önnur þjónusta útilokar ekki frekari þjónustu Bergsins og kjósa þau sem hafa verið vísað áfram yfirleitt að halda áfram í þjónustu Bergsins. Við erum hlutlaust svæði, ekki skólinn, heilsugæslan eða félagsþjónustan. Við erum ekki staður sem setur skilyrði eða tengjast öðrum þáttum í þeirra lífi. Við erum að átta okkur betur og betur á gildi þess að hafa slíkan stað fyrir ungmenni á Íslandi. Bergið hefur fengið mikinn stuðning og meðbyr frá samfélaginu öllu og fyrir það þökkum við. Á þessu ári höldum við áfram að mæta ungmennum á þeirra forsendum en einnig munum við styrkja og efla okkar þjónustu við ungt fólk á Íslandi. Ungmennin okkar eru svo ótrúlega flott og fær, þau eru að standa sig í skólum, í listum, í vinnu og leggja svo mikið af mörkum til samfélagsins okkar alls. Þau eru framtíðin okkar og eiga skilið að við hlustum á þau – í alvöru. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira