Körfubolti

Íslandsmeistarar KR halda áfram að bæta við sig leikmönnum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnór Hermannsson er kominn heim í Vesturbæinn
Arnór Hermannsson er kominn heim í Vesturbæinn Vísir/KR

Íslandsmeistarar KR í körfubolta hafa fengið Arnór Hermannsson aftur í sínar raðir en hann kemur til liðsins frá ÍR. Er hann annar leikmaðurinn sem gengu í raðir KR á síðustu dögum. 

Arnór lék með liði Breiðabliks á síðustu leiktíð en gekk í raðir ÍR fyrir yfirstandandi leiktíð. Þar var hann í aukahlutverki og lék aðeins 13 mínútur að meðaltali í leik. 

Mike DiNunno, sem varð Íslandsmeistari með KR á síðustu leiktíð, gekk einnig í raðir félagsins á dögunum og voru þau skipti rædd í Dominos Körfuboltakvöldi nú á föstudaginn var.

Það er ljóst að sexfaldir Íslandsmeistarar KR ætla sér að gera atlögu að hinum sjöunda en liðið hefur verið að glíma við mikil meiðsli það sem af er tímabili.


Tengdar fréttir

Di Nunno aftur í KR

Mike Di Nunno er kominn aftur í KR og klárar tímabilið í Domino´s deildinni en félagsskipti hans eru gengin í gegn hjá KKÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×