Innlent

Safnar heimildum um Þjóð­há­tíð á kórónu­veiru­tímum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þjóðhátíð verður ekki haldin með formlegum hætti í Vestmannaeyjum í ár.
Þjóðhátíð verður ekki haldin með formlegum hætti í Vestmannaeyjum í ár. Vísir/Sigurjón

Anna Lilja Sigurðardóttir stofnaði Facebook hópinn „Þjóðhátíðin mín 2020“ til að safna heimildum um þá þjóðhátíð sem Eyjamenn ætla að halda um næstu helgi. Margir ætla að tjalda í görðum sínum og gleðjast með vinum og ættingjum. Anna Lilja spjallaði við Hvata í þættinum Helgin á Bylgjunni.

„Það er ekkert komið inn ennþá sem er mjög spennandi líka vegna þess að það eru 600 manns komnir í hópinn þannig að menn ætla greinilega að gera eitthvað,“ segir Anna Lilja.

Eitthvað sé um að Eyjamenn ætli að vera með tjaldveislur heima í garði. „Menn hafa talað um það að vera með sína eigin [hátíð], tjalda kannski í garðinum og hóa saman fjölskyldunni eins og menn gera alltaf á þessum tíma,“ segir Anna. „Maður gerir ráð fyrir að menn muni eyða tímanum með sínu fólki. Örugglega margir að fá gesti.“

Hún segir þó líklegt að margir verði hreinlega ekki á staðnum „en samt að halda einhverja smá Þjóðhátíð einhvers staðar annars staðar.“

Þjóðhátíðarnefnd vinnur nú hörðum höndum að því að endurgreiða miðana sem keyptir voru en Anna telur marga heimamenn ætla frekar að tryggja sér miða á hátíð næsta árs. „Menn séu jafnvel að fjárfesta núna í miðunum og láta gilda fyrir 2021.“

„Ég er mikil Þjóðhátíðarmanneskja, elska undirbúninginn og allt í kring um þetta en stundum kemur eitthvað inn í lífið sem maður stjórnar engan vegin og þá er það bara þannig,“ segir Anna en að sögn hefur nokkuð borið á því að fólk spyrji hvort Eyjamenn geti ekki sleppt Þjóðhátíð „svona einu sinni.“

Anna Lilja segist ekki hafa stofnað hópinn fyrir sjálfa sig eða til að hvetja til þess að fólk héldi eigin Þjóðhátíð heldur til að safna heimildum um Verslunarmannahelgarhátíðir í Eyjum þetta árið. „Hvað gerði fólk á þessum skrítnu tímum? Ég er ekki að fara að nota þetta í eitt eða neitt en þá koma til greina einhverjir sem nota svona heimildir í eitthvað en ég var bara að búa til eitthvað svæði þar sem fólk getur sett inn hvað það er að gera.“

Þá er jafnframt búið að hlaða upp brennu á Fjósakletti sem kveikt er ár hvert. „Ég held að margir séu spenntir að fá brennu á föstudagskvöldið. Það eina sem að sjálfsögðu gerir strik í reikninginn er að spáin er ekkert spes.“

„Það verður kveikt í þessari brennu en það verður bara að koma í ljós hvernig það verður,“ segir Anna Lilja.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Önnu Lilju í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×