Þrjár stunguárásir, nauðgun og andlát á ólöglegum samkomum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 14. júní 2020 22:30 Lögreglan áætlar að um sex þúsund manns hafi sótt samkomurnar tvær. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint. Stringer/EPA
Tvítugur maður lést, einni konu var nauðgað og minnst þrír hafa lent í stunguárás á tveimur ólöglegum samkomum á stór-Manchester svæðinu í Englandi. Alls sóttu sex þúsund manns samkomurnar, sem fram fóru í gær. Um er að ræða tónlistarböll (e. rave) sem blásið var til þrátt fyrir tilmæli til almennings í Bretlandi um að koma ekki saman til þess að forða frekari útbreiðslu kórónuveirunnar. Böllin fóru fram í Daisy Nook County-garðinum annars vegar og Carrington hins vegar. Í Daisy Nook lést tvítugur maður meðan á samkomunni þar stóð, en hann er talinn hafa innbyrt of stóran skammt fíkniefna. Í Carrington urðu síðan þrjár stunguárásir, auk þess sem 18 ára konu var nauðgað, að sögn lögreglunnar á svæðinu. Fórnarlamb einnar stunguárásarinnar er í lífshættu. Myndir frá vettvangi má meðal annars sjá á vef breska ríkisútvarpsins BBC, þar sem fjallað er um málið. Sjá má straum ungs fólks á leiðinni á ball. Á einum stað mátti sjá stóran borða sem á stóð „Sóttkvíarball“ (e. Quarantine Rave).
England Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira