Erlent

Frestar stuðnings­manna­fundi eftir harða gagn­rýni á daga­valið

Sylvía Hall skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Vísir/Getty

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fresta stuðningsmannafundi sem átti að fara fram í Tulsa í Oklahoma eftir tæplega eina viku, eða þann 19. júní, til þess að fundurinn fari ekki fram á degi sem fagnar endalokum þrælahalds í Bandaríkjunum. Stuðningsmannafundurinn verður sá fyrsti eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst.

Fundurinn verður því degi seinna en í upphafi átti hann að fara fram næstkomandi laugardag. Dagavalið vakti hörð viðbrögð, enda er dagurinn haldinn hátíðlegur af svörtu fólki víða um Bandaríkin til þess að fagna því að þrælahaldi lauk vestanhafs.

Dagurinn er einnig þekktur sem Juneteenth. Þann dag árið 1865 tilkynnti Gordon Granger að allir þrælar í Texas skyldu verða frjálsir, tveimur og hálfum árum eftir að Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti tilkynnti afnám þrælahalds í landinu.

Í upphafi ætlaði Trump að standa við dagsetninguna og sagði Bandaríkjamenn geta hugsað um stuðningsmannafundinn sem „fögnuð“ og að enginn forseti hefði haldið sambærilega stuðningsmannafundi í sögu stjórnmála. Í samtali við Fox News sagði hann fundi sína vera sögulega í þeim skilningi.

Sakaður um að „halda partý“ fyrir hvíta þjóðernissinna

Kamala Harris, öldungadeildarþingmaður Demókrata og fyrrum frambjóðandi í forvali Demókrataflokksins, gagnrýndi dagsetninguna harðlega og sagði Trump vera að bjóða hvíta þjóðernissinna velkomna í Repúblikanaflokkinn.

„Hann er ekki bara að nikka til hvítra þjóðernissinna – hann er að halda partý fyrir þá,“ sagði Harris.

Trump segist nú hafa tekið gagnrýnina til greina eftir að margir svartir vinir hans bentu honum á að íhuga að breyta dagsetningunni. Þannig sýni hann deginum virðingu og því sem hann standi fyrir.

„Ég hef þar með ákveðið að færa fundinn til laugardagsins 20. júní til þess að virða óskir þeirra,“ sagði forsetinn.

Líkt og áður sagði verður stuðningsmannafundurinn sá fyrsti frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst, en síðasti fundur forsetans fór fram þann 2. mars. Síðan þá hefur verið lagt bann við fjöldasamkomum sem setti strik í reikninginn.

Fundurinn er hluti af kosningabaráttu forsetans sem sækist eftir endurkjöri í nóvember næstkomandi. Þá munu Bandaríkjamenn velja á milli hans og Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins, en skoðanakannanir hafa sýnt fram á að fylgi sitjandi forseta fari minnkandi og að Biden sé nú með forskot. 

Á meðal þess sem hefur haft töluverð áhrif á fylgi forsetans eru viðbrögð hans við mótmælum um öll Bandaríkin þar sem lögregluofbeldi og mismunun í garð svartra er mótmælt.


Tengdar fréttir

Bók þjóðar­öryggis­ráð­gjafa Trump væntan­leg í júní

Lögmaður Johns Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta, segir að bók um tíma hans í Hvíta húsinu komi út 23. júní þrátt fyrir tilraunir lögmanna þess til að koma í veg fyrir útgáfuna.

Sjá sig sem fanga í Trump-lestinni

Kjörnir fulltrúar Repúblikanaflokksins telja sig vera fanga í Trump-lestinni og þeir geti ekki hoppað frá borði án þess að missa stöður þeirra á þingi og innan flokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×