Innlent

Ekkert smit greinst síðan á föstudag

Andri Eysteinsson skrifar
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi Vilhelm Gunnarsson

Enn eru þrjú virk kórónuveirusmit hér á landi en ekkert nýtt smit greindist milli daga. Nýtt smit greindist síðast á föstudag.

Samkvæmt tölum á covid.is voru 65 sýni tekin síðasta sólarhringinn. Af þeim voru 18 tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu en 47 á veirufræðideild Landspítalans.

Heildartala þeirra sem greinst hafa með kórónuveiruna sem veldur Covid-19 sjúkdómnum hér á landi er því enn 1.807. 1.794 hafa náð bata en enginn liggur á sjúkrahúsi vegna veirunnar. Í sóttkví eru nú 749.

Þá hafa 21.615 manns lokið sóttkví. Alls hafa 62.976 sýni verið tekin hér á landi.

Tíu hafa látist af völdum Covid-19 hér á landi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×