Innlent

Vann 10 milljónir í Happdrætti Háskólans

Sylvía Hall skrifar
Alls skiptu vinningshafar með sér 123 milljónum króna. 
Alls skiptu vinningshafar með sér 123 milljónum króna.  Vísir/Getty

Einn heppinn miðaeigandi vann tíu milljónir króna í svokallaðri Milljónaveltu Happdrættis Háskóla Íslands. Dregið var í kvöld þar sem fleiri duttu í lukkupottinn.

Tveir miðaeigendur unnu fimm milljónir hvor. Þá hlutu tveir 2,5 milljónir og sex miðaeigendur eina milljón króna í vinning hver.

Í tilkynningu kemur fram að í heildina hafi vinningshafar skipt með sér 123 milljónum króna í skattfrjálsa vinninga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×