Lífið

FÍT-verðlaunin 2020: Auglýsingar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Gullverðlaunahafar í flokknum Auglýsingar.
Gullverðlaunahafar í flokknum Auglýsingar.

Alls voru 440 verk innsend til FÍT-verðlaun­anna 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Auglýsingar voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru Auglýsingaherferðir, Umhverfisgrafík, Opinn flokkur og Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla. Lista yfir alla verðlaunahafa ásamt umsögnum um verkefnin má finna hér neðar í fréttinni.

FÍT verðlaunahátíðin átti að fara fram í mars en vegna ástandsins í samfélaginu var ákveðið að tilkynna verðlaunahafana hér á Vísi og halda formlega afhendingu síðar. Síðustu daga hefur verið tilkynnt um verðlaunahafa í öllum 21 flokkunum og var þessu skipt upp í fjórar tilkynningar, þessi er sú síðasta. Í fyrramálið klukkan 09:00 verður svo tilkynnt hvaða gullverðlaunahafi hlýtur hin eftirsóttu aðalverðlaun FÍT. Verðlaunað verður það verk sem þykir eftirminnilegt og áhrifamikið í sínum flokki og góður fulltrúi fyrir sköpunargáfu Íslendinga í samkeppnum á alþjóðavísu.

Auglýsingaherferðir

Gull-Megavika Domino´s

Gullverðlaun

Megavika Domino’s

Herferð sem myndar einstaklega sterka sjónræna heild sem nær til breiðs hóps.. Falleg hönnun og gott samræmi út í gegn. Vel unnin hreyfigrafík sem nýtt er á skemmtilegan hátt.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Eyrún Eyjólfsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Heiðar Þór Jónsson, Brandenburg.

Gull-Kranavatn

Gullverðlaun

Kranavatn — Inspired by Iceland

Skemmtileg herferð sem er einstaklega viðeigandi fyrir markhópinn, vekur fólk til umhugsunar og bendir á skemmtilegan hátt á sérstöðu landsins.

Hönnun: Sævar Steinn Guðmundsson og Bertrand Kirschenhofer  , Íslenska auglýsingastofan.

Silfur-Fullt af allskonar

Silfurverðlaun

Fullt af allskonar — Kringlan

Herferð sem nær á skemmtilegan hátt að sýna gnægtir Kringlunnar. Litríkt og leikandi myndefni grípur augað og smáatriðin gleðja hugann. Skemmtilegar hugmyndir sem búið er að föndra af kostgæfni og skila sér í vönduðum og fallegum útfærslum.

Hönnun: Sigrún Gylfadóttir, Vala Þóra Sigurðardóttir, Alex Jónsson, Ástrós Linda Ásmundsdóttir, Kontor Reykjavík.

Silfur-Jafnaðu þig hjá Orkunni

Silfurverðlaun

Jafnaðu þig hjá Orkunni — Orkan

Skemmtileg herferð sem fær mann til að brosa út í annað. Fjölbreyttar og ólíkar útfærslur hannaðar fyrir hvern miðil en ávallt tengdar saman með slagorði herferðarinnar.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gísli Arnarson, Davíð Arnar Baldursson, Brandenburg.



Umhverfisgrafík

Gull - Þitt nafn bjargar lífi

Gullverðlaun

Þitt nafn bjargar lífi — Íslandsdeild Amnesty International

Snjöll og einstaklega viðeigandi hugmynd fyrir viðfangsefnið og miðilinn. Einföld hugmynd sem er vel útfærð og auðskiljanleg en hreyfir samt við manni.

Hönnun: Elsa Nielsen, Kontor Reykjavík

Silfur-Jafnaðu þig á jólaösinni

Silfurverðlaun

Jafnaðu þig á jólaösinni — Orkan

Umhverfisgrafík sem er skemmtilegt tvist á herferð og nær að vera rétt hugmynd á réttum stað. Vandað til verka og skapar sterka upplifun fyrir þátttakendur.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gísli Arnarson, Brandenburg.



Opinn flokkur

Gull-Húrra Jól

Gullverðlaun

Jól í Húrra Reykjavík - Húrra Reykjavík

Einföld hugmynd en virklega skemmtileg, þar sem klisjum jólanna er snúið á óvæntan og frumlegan hátt. Smellpassar bæði fyrir búðina og markhópinn.

Hönnun: Þorgeir K. Blöndal, Brandenburg.

Gull-Hnútar

Gullverðlaun

Hnútar

Virklega fallega hannað skrautletur, sem er einstaklega vandað og hvert smáatriði úthugsað. Flott útfærsla með samsuðu á tveim stílum.

Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Ulysses.



Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla

Gull-Fullt af allskonar fyrir gleðilega hátíð

Gullverðlaun

Fullt af allskonar fyrir gleðilega hátíð - Kringlan

Einstaklega falleg framsetning á skemmtilegri hugmynd. Klassísk klisja tekur óvænta stefnu en nær að halda bæði hátíðleika og vörum í forgrunni. Fallega stílfært og sterkt myndmál.

Hönnun: Sigrún Gylfadóttir, Vala Þóra Sigurðardóttir, Alex Jónsson, Ástrós Linda Ásmundsdóttir, Elsa Nielsen, Kontor Reykjavík.

Silfur-Megavika

Silfurverðlaun

Megavika Domino’s

Vel heppnaður teiknistíll fær að njóta sín til fulls og skilaboðin eru einföld. Grípur augað í hvert sinn en fær mann líka til að staldra við og skoða skemmtileg smáatriði.

Hönnun: Hrafn Gunnarsson, Gunnhildur Karlsdóttir, Jón Páll Halldórsson, Brandenburg.



Öll úrslit FÍT verðlaunanna 2020 hafa verið tilkynnt hér á Vísi síðustu daga. Aðalverðlaun FÍT verða svo tilkynnt á morgun á slaginu klukkan 09.

FÍT, FÉLAG ÍSLENSKRA TEIKNARA var stofnað 23. nóvember 1953. FÍT keppnin er haldin árlega og þar er keppt um það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi. Innsendingar í keppnina eru einnig opnar fyrir öðrum en FÍT meðlimum, enda er markmið keppninnar að endurspegla það besta í grafískri hönnun og myndlýsingum á Íslandi en ekki eingöngu það besta meðal félagsmanna.


Tengdar fréttir

FÍT-verðlaunin 2020: Skjáir

Í flokknum Skjáir voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru vefsvæði, gagnvirk miðlun, hreyfigrafík og að lokum opinn stafrænn flokkur.

FÍT-verðlaunin 2020: Prent

Næstu daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum stakar myndlýsingar, myndlýsingarraðir, myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir, veggspjöld, bókakápur, bókahönnun og nemendaflokkur. 

FÍT-verðlaunin 2020: Mörkun

Næstu þrjá daga verður tilkynnt hvaða verk hljóta FÍT-verðlaunin árið 2020. Innsend verk í keppnina hafa aldrei verið fleiri. Í flokknum Mörkun eru veitt gull- og silfurverðlaun í undirflokkunum firmamerki, mörkun fyrirtækja, menningar- og viðburðarmörkun, geisladiskar og plötur og í flokkinum umbúðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×