Lífið

Fara inn í sumarið á lausu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristján Grétarsson, Aron Pálmarsson og Björn Ingi Hrafnsson eiga það allir sameiginlegt að vera einhleypir.
Kristján Grétarsson, Aron Pálmarsson og Björn Ingi Hrafnsson eiga það allir sameiginlegt að vera einhleypir.

Eftir erfiðan vetur er sumarið loks komið og kórónuveiran virðist vera að hverfa úr íslensku samfélagi.

Lífið hefur því tekið saman lista yfir eftirsótta einhleypa karlmenn hér á landi. Sérstök nefnd Vísis var skipuð til að velja eftirsóttustu piparsveina landsins og má sjá yfirferðina hér að neðan.

Maðurinn sem stal senunni á upplýsingafundum Almannavarna í miðjum faraldri, sjálfur Björn Ingi Hrafnsson er á lausu. Hann heillaði þjóðina með faglegum og góðum spurningum á blaðamannafundunum sem sýndir voru í beinni útsendingu á hverjum degi fyrir alþjóð. Björn er ritstjóri Viljans og hefur sjaldan eða aldrei litið betur út.

Gítarleikarinn Kristján Grétarsson þykir einn sá allra eftirsóttasti en hann kemur reglulega fram með stærstu hljómsveitum landsins og leikur á hljóðfæri af sinni alkunnu snilld. Kristján er sonur Grétar Örvarssonar og líkist föður sínum óneitanlega. 

 Annar í tónlistarsenunni er trommarinn Benedikt Brynleifsson sem heillar marga á bakvið trommusettið. Rétt eins og Kristján kemur Benni Brynleifs reglulega fram með stórsveitum og sést oft á tíðum á sjónvarpsskjám landsmanna. 

 Landsliðsmaðurinn fyrrverandi Eiður Smári Guðjohnsen er á lausu en Eiður starfar í dag sem sérfræðingur í knattspyrnu í sjónvarpi, hér innanlands og erlendis. Hann er einnig aðstoðarlandsliðsþjálfari U-21 landsliðs Íslands.

Eiður þykir með eindæmum smekklegur í klæðaburði og kemur vel fyrir.

Tryggingarsölumaðurinn og knattspyrnuþjálfarinn Mikael Nikulásson hefur heldur betur slegið í gegn í hlaðvarpsþættinum Dr. Football með þeim Hjörvari Hafliðasyni og Kristjáni Óla Sigurðssyni. Mikki, eins og hann er jafnan kallaður, er einhleypur og þykir nokkuð eftirsóttur.

Mikael rekur meðal annars barinn St. Eugen´s á Tenerife sem er að verða sannkallaður Íslendingabar á eyjunni. Hann þjálfar karlalið Njarðvíkur í 2. deildinni hér á landi.

Guðmundur Franklín Jónsson sem býður sig fram til forseta Íslands í komandi forsetakosningum er einhleypur. Kosningarnar fara fram 27. júní næstkomandi en fram hefur komið að Guðmundur hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta.

Ítarlega var fjallað um feril og líf Guðmundar á Vísi í gær og hefur kappinn heldur betur komið víða við.

Guðmundur Franklín ætlar sér að verða næsta forseti Íslands. Vísir/vilhelm

Handboltamaðurinn Aron Pálmarsson, leikmaður Barcelona og íslenska landsliðsins er án efa einhver allra eftirsóttasti piparsveinn landsins. Aron býr í Barcelona og nýtur lífsins þar. Hann á eina dóttur og hefur verið hér á landi undanfarnar vikur þar sem hann taldi betra að vera hér á Íslandi í miðjum faraldri.

Talið er víst að Aron verði næsti landsliðsfyrirliði í handbolta og er hann einn af bestu handboltamönnum heims. Aron er mikill veiðimaður. 

Pálmar Ragnarsson er einn vinsælasti fyrirlesari landsins og svo virðist sem það sé ekki fyrirtæki í landinu sem fái hann ekki til að peppa mannskapinn.

Hann er með eindæmum lífsglaður og kraftmikill maður og segir það nauðsynlegt að hafa gott hugafar og viðhorf í daglegu lífi eins og fram kom í viðtali við hann í Íslandi í dag á Stöð 2 á dögunum. Pálmar er án efa einn sá eftirsóttasti hér á landi.

Friðrik Ómar Hjörleifsson er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Ekki nóg með það, þá er hann einnig einhleypur sem verður að teljast með ólíkindum. Friðrik er með eindæmum skemmtilegur, hress og fyndinn og ekki skemmir útlitið.

Rapparinn góðkunni Erpur Eyvindarson hefur síðastliðna tvo áratugi verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Þessi mikli Kópavogsbúi er einhleypur og býr í fallegu einbýlishúsi við Sæbólsbraut.

Erpur er hress og skemmtileg týpa sem heillar marga með persónutöfrum sínum. Rapparinn elskar að ferðast um heiminn eins og sjá má á Instagram-reikningi tónlistarmannsins. 

Viðskiptamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, eigandi Barion og Hlöllabátar, er einhleypur. Hann stendur í ströngu þessa dagana og mun á næstunni opna minigolfstaðinn Minigarðinn og einnig Barion Bryggjan Brugghús.

Segja má að Simmi Vill sé í raun Instagram-stjarna í dag en hann er með fjölmarga fylgjendur þar og sýnir skemmtilega frá lífi sínu á þeim vettvangi. Þar má meðal annars sjá að Simmi er stórkostlegur í eldhúsinu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×