Rafíþróttir

Eigandi Dusty ánægður með stórt skref: Meiri peningar í boði þarna

Sindri Sverrisson skrifar
Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson er eigandi Dusty.
Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson er eigandi Dusty. MYND/STÖÐ 2 SPORT

Íslenska rafíþróttafélagið Dusty er komið inn í atvinnumannadeild í tölvuleiknum League of Legends. Eigandi Dusty segir það opna á góða tekjumöguleika fyrir félagið.

Dusty er eitt tólf félaga sem komust í gegnum umsóknarferlið fyrir hina nýju deild sem ber heitið Northern League of Legends Championship, en þar leika bestu lið Bretlands og Norðurlanda.

„Tækifærin þarna eru mikið fleiri. Það eru peningaverðlaun í boði og þetta er bara meira tekjuskapandi en aðrar deildir í þessum leik,“ segir Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson, eigandi Dusty, í Sportinu í dag. Hvernig kom það til að hann eignaðist rafíþróttafélag?

„Þetta er ekki nema ársgamalt batterí, frá því að hugmyndin kviknaði fyrst. Það var nú bara vegna uppgangsins í senunni hérna heima sem ég ákvað að stökkva til og prófa þetta. Við erum ekkert að finna upp hjólið, bara að gera þetta að erlendri fyrirmynd. Er þetta dýrt? Nei, nei. En þetta verður dýrara, sérstaklega þegar við komumst í þessa deild. Þá eru þetta bara atvinnumenn sem eru að spila fyrir okkur, og utanumhaldið verður meira,“ segir Ásbjörn.

Dusty teflir fram liðum í League of Legends, Counter-Strike og FIFA en leikirnir eru ansi ólíkir. Allir snúast þeir einfaldlega um að sigra lið andstæðinganna en Ásbjörn gerði tilraun til að útskýra betur út á það hvað League of Legends gengur:

„Ég þekki þennan leik reyndar ekki vel og hef látið aðra um tæknilegu hliðina í þessu. En það eru fimm leikmenn í hvoru liði, og hver og einn er ákveðin hetja. Borðið skiptist í þrjár brautir og þá keppast þessar tíu hetjur um að ná yfirráðum yfir hverri braut, og klára svo leikinn með því að eyðileggja bækistöðvar andstæðinganna.“

Klippa: Sportið í dag - Íslenskt rafíþróttalið í atvinnumannadeild

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Hasar í fjórðu umferð Vodafone deildarinnar

Fjórða vika Vodafone deildarinnar hefst í kvöld. Á Stöð 2 eSport veður sýnt frá viðureign liðanna KEF.esports og TILT í CS:GO og Dusty Academy og Turboapes United í LoL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×