Handbolti

Nökkvi efldi sjálfstraust HK-inga innan vallar sem utan

Sindri Sverrisson skrifar
Brynjar Freyr Valsteinsson ræddi við Henry Birgi Gunnarsson í Sportinu í dag.
Brynjar Freyr Valsteinsson ræddi við Henry Birgi Gunnarsson í Sportinu í dag. MYND/STÖÐ 2 SPORT

Nökkvi Fjalar Orrason, samfélagsmiðlastjarna og frumkvöðull, var ráðinn til að bæta andlega þáttinn hjá leikmönnum og þjálfurum HK í handbolta karla með góðum árangri.

Þetta segir Brynjar Freyr Valsteinsson, formaður handknattleiksdeildar HK, í Sportinu í dag. HK-ingar voru án stiga í Olís-deildinni þegar Nökkvi kom til starfa en unnu þrjá leiki eftir áramót og enduðu í 11. sæti. Liðið leikur í næstefstu deild á næstu leiktíð.

„Við fórum með ákveðna prufu í gang með Nökkva í andlegri þjálfun. Hann er búinn að vera að mennta sig sjálfur í því. Sjálfsmenntaður reyndar, en mjög fær. Við fórum með karlaliðið okkar í þessa prufu frá því í desember og út tímabilið. Ástæðan var einföld, við vorum án stiga og í vandræðum og þurftum að fara aðrar leiðir,“ segir Brynjar.

„Ég held að fyrsti tíminn hjá honum hafi verið sjö klukkustundir, með leikmönnum og þjálfurum. Hann kom á alla leiki og vann með leikmönnum í allan vetur, og það skilaði sér virkilega vel. Við sáum mun á spilamennsku og aðallega í sjálfstrausti, ekki bara innan vallar heldur líka utan. Hann lagði mikla vinnu í þetta og við erum rosalega þakklátir honum fyrir að koma svona inn og vinna þetta með okkur,“ segir Brynjar.

Klippa: Brynjar um hjálp Nökkva Fjalars með HK

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

HSÍ flautar Íslandsmótið af

HSÍ hefur ákveðið að blása öll mót á vegum sambandsins af vegna kórónuveirunnar. Þetta staðfesti sambandið á vef sínum í kvöld eftir stjórnarfund sambandsins fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×