Skuldatryggingarálag á uppleið 23. júlí 2008 06:00 Smelltu á myndina til þess að stækka hana.
Skuldatryggingarálag íslensku bankanna er á uppleið og nálgast nú 1000 punkta. Álagið fór hæst í 1085 punkta á Kaupþing og 1025 punkta á Glitni í mars síðastliðinn. Skuldatryggingarálagið á Landsbankann er nokkuð lægra og stendur í rúmlega 600 punktum. Financial Times greinir frá því hefur eftir greinanda á íslensku bönkunum að að það sé ekki nein augljós ástæða fyrir þessum hækkunum. Álag yfir 1000 punkta merkir jafnan að bankar séu mjög líklegir til að fara í gjaldþrot. „Það er ekki hægt að tala um raunverulega verðmyndum á þessum markaði, sem er ákaflega ógagnsær og ekki opinber," segir Jónas Sigurgeirsson, forstjóri samskiptasviðs hjá Kaupþingi. Hann bendir á sérfræðingar Kaupþings hafi sagt að lítil viðskipti fari fram með skuldatryggingar og upplýsingar um verð sé að mestu byggðar á tilboðum. „Þróunin á þessum markaði er vissulega óþægileg fyrir bankann en til lengri tíma litið er það raunverulegur rekstrarárangur og efnahagslegur styrkur sem skiptir máli, Kaupþing hefur verið að gefa út skuldabréf á mun betri kjörum en skuldatryggingarálagið gefur til kynna," segir Jónas. David Oakley, greinarhöfundur Financial Times benti á óskilvirkni skuldatryggingarálags í nýlegri grein. Þar tók hann Kaupþing sem dæmi og bendir á að bankinn hafi nýlega gefið út skuldabréf með um 200 punkta álagi en á sama tíma hafi álagið á markaði verið um 500 punktar. Hann bendir jafnframt á að skuldatryggingarálag hafi verið betri mælikvarði þegar nægt fjámagn var til staðar á markaði en á síðastliðnum mánuðum hafi álagið ekki verið jafn góður mælikvarði á áhættu og áður. Seljanleiki sé ekki jafn mikill og áður sem bitni á þeim viðskiptum sem fara fram með skuldatryggingarálag. - bþa
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira