Aron tekur við Haukum í þriðja sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2020 06:50 Aron er öllum hnútum kunnugur á Ásvöllum. vísir/bára
Aron Kristjánsson tekur við karlaliði Hauka í handbolta í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Haukum. Aron tekur við þjálfarastarfinu hjá Haukum af Gunnari Magnússyni sem hættir hjá félaginu eftir tímabilið og tekur við Aftureldingu. Þetta er í þriðja sinn sem Aron tekur við Haukum. Hann þjálfaði Hauka á árunum 2007-10 og gerði liðið að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð. Haukar urðu einnig tvisvar deildarmeistarar og einu sinni bikarmeistarar á þessum tíma. Aron tók aftur við Haukum 2011 og stýrði liðinu í tvö ár. Haukar urðu tvisvar deildarmeistarar og einu sinni bikarmeistarar á þeim tíma auk þess sem liðið tapaði í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn fyrir Fram 2013. Aron var aðstoðarþjálfari Gunnars hjá Haukum seinni hluta síðasta tímabils. Hann er einnig þjálfari karlalandsliðs Barein sem er á leið á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar. Aron þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 2012-16, auk þess sem hann hefur þjálfað í Danmörku og Þýskalandi. Haukar hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og eru aðeins með eins stigs forskot á toppi Olís-deildar karla. Næsti leikur Hauka er gegn ÍBV á útivelli eftir viku.
Olís-deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira