Viðskipti innlent

Skipti hf. semur við tvö innheimtufyrirtæki

Momentum ehf. og Gjaldheimtan ehf. hafa tekið að sér innheimtu fyrir dótturfélög Skipta hf., en stærstu félög Skipta hérlendis eru Síminn, Míla, Já og Skjárinn.

Samningurinn kemur til framkvæmda um áramót. Er þetta niðurstaða verðkönnunar sem Skipti efndi til, þar sem Momentum og Gjaldheimtan áttu hagstæðasta boð, þar sem bæði reyndi á verð og gæði þjónustu.

Kristín Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Skiptum segir að með verðkönnuninni hafi nást það mikilvæga markmið að velja til samstarfs fyrirtæki sem stillti gjaldtöku í hóf svo innheimtukostnaði væri haldið í lágmarki fyrir viðskiptavini. Jafnframt tryggir samningurinn að Skipti njóti hagstæðra kjara við innheimtu viðskiptakrafna sinna.

Davíð B. Gíslason, framkvæmdastjóri Gjaldheimtunnar segir samninginn við Skipti mjög ánægjulegt skref fyrir félögin og staðfesti þá miklu vinnu og alúð sem þau hafa lagt í að efla þá þjónustu sem boðin er fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×