Vignir Svavarsson semur við Lemgo Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. nóvember 2007 15:53 Vignir í æfingaleik með Skjern gegn Haukum sumarið 2006. Mynd/Stefán
Handboltamaðurinn Vignir Svavarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarliðið Lemgo. Hann mun væntanlega gangast undir læknisskoðun í næsta mánuði og eftir það mun samningurinn taka gildi. Hann gengur formlega til liðs við Lemgo eftir að tímabilinu í Danmörku er lokið í vor. „Ég hef enga ástæðu til að hafa áhyggjur af læknisskoðuninni enda hef ég aðeins misst af einum leik vegna meiðsla á öllum ferlinum," sagði Vignir í samtali við Vísi. „Að öðru leyti er þetta frágengið og er ég mjög ánægður með samninginn. Það er líka gott að vera búinn að ganga frá þessum málum því nú get ég einbeitt mér að tímabilinu með Skjern." Logi Geirsson er á mála hjá Lemgo og Ásgeir Örn Hallgrímsson fór frá Lemgo í sumar til GOG Svendborg í Danmörku í sumar. „Þeir gáfu báðir félaginu sín bestu meðmæli enda er þetta toppklúbbur. Mér líst mjög vel á þau áform sem eru uppi hjá félaginu. Það ætlar sér stóra hluti og vilja fá mig í það verkefni með sér. Ég vona að mitt besta sé nógu gott." Hann segir að það sé samkeppni um allar stöður í toppliðunum í Evrópu og hann er ekki feiminn við að láta reyna á sig í bestu deild í heimi. „Ég vil sjá hvar ég stend og næsta skref fyrir mig var að athuga hvernig maður spjarar sig í Þýskalandi. En ég hef það voðalega gott í Danmörku og allt í kringum Skjern er eins og best verður á kosið," sagði Vignir sem hefur leikið með Skjern í tvö og hálft ár. Vignir fékk sér umboðsmann í ágúst síðastliðnum og hafa þeir síðan þá verið að vinna í því að finna honum nýtt félag. „Lemgo hefur verið upp á borðinu undanfarinn mánuð og var ekki erfitt að ákveða að semja við þá. Það var þó erfitt að taka þá ákvörðun að fara frá Danmörku." Hann segist vera í engum vafa um að danska úrvalsdeildin sé sú þriðja sterkasta í Evrópu, á eftir þýsku og spænsku deildinni. Hún hafi einnig aldrei verið eins sterk. „Það eru fáir leikmenn sem fara frá Danmörku og mörg stór nöfn hafa verið að koma til liða í deildinni. Hér eru mörg lið jöfn að styrkleika og geta allir unnið alla í toppbaráttunni." Skjern er í áttunda sæti deildarinnar með þrettán stig eftir ellefu umferðir en aðeins tveimur stiugm á eftir GOG sem er í þriðja sæti. FCK er á toppnum með sautján stig.
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira