Sund bannað börnum Ómar Stefánsson skrifar 14. desember 2010 05:00 Dóninn ég, þurfti að lesa aftur yfir bréf mitt til Svandísar í Fréttablaðinu frá því á fimmtudaginn eftir að ég sá viðbrögðin. Ég sem hafði talið mig vera frekar kurteisan og ekki með sleggjudóma eða dónaskap og breytt meira segja fyrirsögninni úr "Leyfðu börnunum..." í „Viltu leyfa börnunum að fara í sund Svandís". Það var nú annað í svari Svandísar til mín. En í grein hennar segir m.a. "hann furðar sig á" og "Ómar telur það hið versta mál", þetta eru ýkjur og er einfaldlega rangt. Ég skrifaði undir greinina sem "sundpabbi" en Fréttablaðið bætti við fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi, sem er önnur saga. En Svandís gerir töluvert úr því að ég sé bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi. Bara svo það komi skýrt fram, þá er ég ekki að endurspegla skoðanir Framsóknarflokksins í Kópavogi hvað þá heldur skoðanir bæjarstjórnar Kópavogs, heldur mínar eigin í þessu máli. Nóg um það. Svandís segir að "Breytingin er að sjálfsögðu til komin vegna öryggissjónarmiða" Ég þóttist nú vita það, en sú tölfræði sem miðað er við er orðin 17-26 ára gömul og t.d. ekkert tekið tillit til þess að það hefur nánast orðið sprenging í ungbarnasundi síðan. Ég fullyrði að út frá öryggissjónarmiðum og smá skammti af forsjárhyggju þá væri álita mál hvort ekki ætti að banna eldri börnum að fara í sund án forráðamanna, jafnvel allt að 18 ára aldri. Það er best. Þar sem rannsóknin, sem Svandís vísar í var gerð 1984-1993 og síðan könnun sem gerð var 1998, er orðin gömul hefði ég í hennar sporum látið gera nýja rannsókn. Allt eiga þetta vera tölur sem hægt er að nálgast hratt og örugglega og ættu að vera aðgengilegar í gegnum stjórnarráðið. Það er verið að taka mikilvæga ákvörðun sem bitnar á börnum. Varðandi synd börn samkvæmt "gildandi skilgreiningum sundkennslu", langar mig að benda á að börn sem eru að fara í sund sér til gamans eru ekki að synda 10 ferðir bringu og 10 ferðir skrið. Þau eru að fara til þess að busla, leika við félaga og fara í rennibrautir og leiktæki. Þar sem hún vitnar í að "Foreldrar hafa í flestum tilfellum ekki skýra mynd af því hvort barnið er synt eða ekki og treysta um of á gæslu sundlaugarvarða" tel ég að foreldrar munu væntanlega halda áfram að treysta á gæslu sundlaugarvarða, því foreldrar munu eftir sem áður leyfa börnunum að fara busla í lauginni á meðan þeir eru í heitu pottunum. Varðandi boð Svandísar um að ganga á hennar fund tel ég það óþarfa tímaeyðslu. Hún taldi ástæðulaust að gera nýja rannsókn til að afla nýrra gagna, en lét duga rannsókn frá síðust öld. Dæmin sanna að Svandís hefur engan áhuga á umræðu um sínar ákvarðanir. Því hef ég ákveðið að ræða þetta ekkert frekar, þar sem Svandís hefur nóg að gera við að vernda landið fyrir brjálaða fólkinu í landinu sem vill skapa atvinnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun