Eyjamenn hafa tapað þrisvar í röð í „líf eða dauða“ leik í Eyjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2019 13:30 Það reynir á Dag Arnarsson og félaga í Eyjum í kvöld. Vísir/Daníel
ÍBV liðið berst fyrir lífi sínu í úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í kvöld þegar liðið fær deildarmeistara Hauka í heimsókn í leik fjögur í undanúrslitaeinvígi liðanna. Haukar hafa unnið tvo leiki á móti einum og tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu á móti Selfossi með sigri í leiknum í kvöld. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Seinni bylgjan verður út í Eyjum og hefst upphitun hennar klukkan 17.45. Í síðustu þrjú skipti sem Eyjamenn hafa barist fyrir lífi sínum í úrslitakeppninni á heimavelli sínum í Vestmannaeyjum þá hafa þeir verið sendir í sumarfrí. Valur (2017), Haukar (2016) og Afturelding (2015) tryggðu sig þannig öll áfram úr einvígi á móti ÍBV með því að vinna síðasta leikinn út í Vestmannaeyjum. Það þarf að fara aftur til lokaúrslitanna 2014 til að finna leik upp á líf eða dauða fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV-liðið fagnaði sigri. Sá leikur var reyndar mjög eftirminnilegur því ÍBV vann hann 27-20 og fór svo á Ásvelli og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í oddaleik.Síðustu skipti þar sem lið gátu sent Eyjamenn í sumarfrí út í Eyjum:Oddaleikur í átta liða úrslitum 2017 Valur vann ÍBV 27-26 (og einvígið 2-1)Fjórði leikur í undanúrslitum 2016 Haukar unnu ÍBV 30-28 (og einvígið 3-1)Annar leikur í átta liða úrslitum 2015 Afturelding vann ÍBV 22-21 (og einvígið 2-0)Fjórði leikur í lokaúrslitum 2014 ÍBV vann Hauka 27-20 (og einvígið síðan 3-2)Oddaleikur í undanúrslitum 2014 ÍBV vann Val 28-23 (og einvígið 3-2)
Olís-deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira