Hagen sleppt úr gæsluvarðhaldi Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2020 15:36 Anne-Elisabeth Hagen hvarf af heimili sínu og eiginmanns síns, Tom Hagen, 31. október 2018. Rannsókn málsins teygir anga sína víða og náði óvæntum vendipunkti í síðustu viku, þegar Tom Hagen var handtekinn. Vísir/EPA
Tom Hagen hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir að Hæstiréttur Noregs úrskurðaði gegn lögreglunni um framlengingu. Neðra dómsstig úrskurðaði í gær að Hagen skyldi sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Hann er grunaður um morð eða aðild að morði á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen. Ekkert hefur spurst til Anne-Elisabeth frá 31. október 2018. Málið var fyrst rannsakað sem mannrán, en lögregla telur nú Tom Hagen hafa sviðsett ránið til að villa um fyrir lögreglunni. Sjá einnig: Annar maður handtekinn vegna Hagen-málsins Tom Hagen var handtekinn í lok aprílmánaðar og í kjölfarið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Lögmannsréttur Eidsivaþing í Noregi úrskurðaði hins vegar í gær að Hagen skyldi sleppt úr gæsluvarðhaldi, vegna ónógra sönnunargagna. Hæstiréttur hefur nú tekið undir þann úrskurð. Svein Holden, lögmaður Hagen, talar við fjölmiðla.EPA/Heiko Junge Í samtali við fjölmiðla segir Svein Holden, lögmaður Hagen, að niðurstaðan komi sér ekki á óvart. Lögreglan hefur rétt á því að handtaka Hagen aftur en samkvæmt NRK veit Holden ekki hvort það standi til. Til þess þyrfti lögreglan mun betri sönnunargögn og sagðist hann ekki hafa áhyggjur af því.
Noregur Anne-Elisabeth Hagen Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira