Deilan um Falklandseyjar: Argentínumenn fagna ákvörðun um stækkun landhelgi Atli Ísleifsson skrifar 29. mars 2016 10:03 Eyjarnar eru nú sjálfstjórnarsvæði þar sem Bretar ráða yfir varnar- og utanríkismálum landsins. Vísir/Getty
Argentínsk stjórnvöld fagna nú ákvörðun nefndar Sameinuðu þjóðanna um stækkun landhelgi ríkisins, en hinar umdeildu Falklandseyjar eru nú samkvæmt ákvörðuninni innan argentínskrar landhelgi. Argentínska utanríkisráðuneytið hefur greint frá því að landhelgi Argentínu hafi með ákvörðuninni stækkað um 1,7 milljón ferkílómetra, eða 35 prósent.Í frétt Sky News segir að ákvörðun Sameinuðu þjóðanna verði höfð til grundvallar í áframhaldandi baráttu ríkisins við Breta um Falklandseyjar sem Argentínumenn kalla Las Malvinas. Utanríkisráðherrann Susana Malcorra segir ákvörðunina skipta sköpum varðandi afmörkun landgrunns Argentínu og yfirráð yfir því. Argentínumenn gerðu tilraun til að ná eyjunum á sitt vald árið 1982 þegar þeir komu hermönnum fyrir á eyjunum, en þurftu frá að hverfa skömmu síðar. Stríðið stóð í rúma tvo mánuði og fórust alls um níu hundruð manns – 255 Bretar og 649 Argentínumenn – og á þriðja þúsund særðust. Þá misstu bæði Bretar og Argentínumenn nokkrar freigátur og tundurspilla og argentínski flugherinn þurrkaðist nánast út. Eyjarnar eru nú sjálfstjórnarsvæði þar sem Bretar ráða yfir varnar- og utanríkismálum landsins. Stór hluti íbúa eyjanna vilja ekkert með Argentínu hafa, en íbúarnir telja um þrjú þúsund. Bresk stjórnvöld hafa enn ekki tjáð sig um ákvörðun nefndar Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Sjá meira