Hundruð milljóna án aðgangs að neysluvatni Guðsteinn Bjarnason skrifar 29. mars 2016 07:00 Drengur nær í vatn í brunn í bænum Babhalichi Bhat sem er skammt frá borginni Múmbaí á Indlandi. Vísir/EPA
Nærri tíundi hver jarðarbúi, meira en 650 milljónir manna á fátækari svæðum jarðarinnar, hefur ekki aðgang að vatni sem öruggt er að nota til drykkjar og heimilisnota. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá alþjóðasamtökunum WaterAid, sem vinna að því að fólk alls staðar á jörðinni hafi öruggan aðgang að hreinu neysluvatni. Í skýrslunni eru tilgreindar þrjár meginástæður þess, að enn eigi fjöldi fólks erfitt með að nálgast hreint vatn með öruggum hætti. Þar er fyrst að nefna fjárskort eða skort á pólitískum vilja til þess að bæta úr. Í öðru lagi eru stjórnvöld víða í fátækari löndum heims ekki fær um að gera það sem til þarf. Loks veldur ójöfnuður því að jafnvel í stórum borgum, þar sem margir búa við nokkra velmegun, hafa fátækari íbúarnir litla sem enga möguleika á að nálgast hreint vatn nema með mikilli fyrirhöfn. Síðastliðið haust undirrituðu leiðtogar 193 landa samkomulag um að að árið 2030 verði búið að tryggja öllum íbúum jarðar aðgang að öruggu vatni og hreinlætisaðstöðu. Samtökin segja að hægt væri að bjarga lífi meira en 300 þúsund barna á ári hverju ef þeim yrði tryggður góður aðgangur að hreinu vatni. Víða á fátækari svæðum heims þarf fólk að kaupa vatnið dýrum dómum. Í Papúa Nýju-Gíneu kosta fimm lítrar af vatni til dæmis nærri 330 krónur, sem er með því dýrasta sem þekkist. Þar í landi er aðgangur að vatni verri en víðast hvar annars staðar. Í skýrslunni kemur fram að frá aldamótum hafi ástandið tekið mestum framförum í Kambódíu, þar sem fjórðungur íbúanna, nærri fjórar milljónir manna, hafa samt enn ekki aðgang að hreinu vatni. Í höfuðborginni, Phnom Penh, hefur þó tekist að bæta svo úr að allir íbúarnir komast í vatn með góðu móti.Fréttin birtist fyrst Fréttablaðinu 29. mars
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira