Sprenging við lögreglustöð í Kaupmannahöfn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 10. ágúst 2019 08:55 Frá vettvangi. Vísir/AP
Sprenging varð fyrir utan lögreglustöð í Kaupmannahöfn í nótt, aðeins nokkrum dögum eftir að sambærileg sprenging varð fyrir utan Skattstofu Danmerkur á þriðjudagskvöld. Engin slys urðu á fólki. Sprengingin varð laust fyrir klukkan hálf fjögur að staðartíma við Norðurbrú, örfáum kílómetrum frá Austurbrú, þar sem Skattstofan er staðsett. Lögregla segir of snemmt að segja til um hvort sprengingin tengist þeirri sem varð fyrr í vikunni, en vinnur nú að rannsókn málsins. Lýst hefur verið eftir manni sem sást flýja vettvanginn eftir að sprengingin varð. Sá var klæddur í svört föt og hvíta skó. Hefur lögregla beðið öll möguleg vitni að málinu að stíga fram. Lögreglan hefur þegar gefið út að grunur leiki á að sprengingin sem varð á þriðjudag hafi verið viljaverk, en hefur þó ekki enn fært fram nein sönnunargögn þeim grun til stuðnings. Í kjölfar árásanna birti Morten Østergaard, þingmaður félagshyggjuflokksins Radikale Venstre, færslu á Twitter þar sem hann sagði að árás á lögregluna væri árás á alla Dani og að í Danmörku ættu engin að óttast að vera sprengd í loft upp, hvort sem það er við lögreglustöð, Skattstofuna eða nokkurs staðar annars staðar.
Danmörk Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira