Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergischer sem gerði jafntefli við Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Arnór Þór skoraði sex mörk í 25-25 jafnteflinu. Ragnar Jóhannsson gerði þrjú.
Eftir jafnar upphafsmínútur náði Bergischer upp fimm marka forskoti þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Göppingen náði að svara fyrir sig og var staðan 17-15 í hálfleik.
Jafnt var með liðunum í seinni hálfleik og deildu þau að lokum stigunum.
Bergischer er í 12. sæti þýsku deildarinnar.
Arnór markahæstur í jafntefli
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar

Mest lesið



Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn
Enski boltinn



Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri
Enski boltinn



Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool
Enski boltinn
