„Mac DeMarco á stóran aðdáendahóp hér á Íslandi og íslenskir tónlistarmenn dýrka hann. Hann kom fyrst fram á Airwaves árið 2013 og var þá á fyrstu metrunum á ferlinum. Nú selst alls staðar upp þar sem hann kemur fram og lögum hans er streymt hundruð milljóna sinnum,“ segir Sindri Ástmarsson, bókunar- og dagskrárstjóri Airwaves og fagnar komu kanadíska tónlistarmannsins.
„Mac DeMarco er að klára nýja plötu og spilar á hátíðum eins og Coachella, Rock Werchter og fleirum í ár. Hann verður því í góðu stuði þegar hann mætir á Airwaves. Við erum ótrúlega spennt fyrir komu hans enda höfðum lengi reynt að fá hann til að koma aftur.“

„Super Early Birds miðarnir eru þegar uppseldir en enn er hægt að kaupa Early Birds miða, á 14.900 krónur. Við hvetjum fólk til þess að næla sér í þá sem fyrst enda bjóðum við metnaðarfulla dagsrká. Fleiri stór nöfn sem við lögðum mikla vinnu í að fá á Airwaves er til dæmis bandaríska hljómsveitin Whitney. Gríðarlega þekkt band sem selur mikið og ekki auðvelt að bóka. Þeir eru loksins að senda frá sér nýja plötu og verða því með nýtt efni,“ segir Sindri. Eitt af markmiðum Airwaves að bóka glænýjar hljómsveitir á uppleið.

Sindri segir Iceland Airwaves löngu hafa fest sig í sessi sem eina mest spennandi tónlistarhátíð heims þar sem sameinist ný og spennandi tónlist við framúrstefnulega tónlistarmenn alls staðar að úr heiminum. Tónlistarunnendur flykkist til landsins og á síðasta ári hafi metfjöldi erlendra blaðamanna sótt hátíðina.
„Það er mikil viðurkenning fyrir Airwaves og við búumst við enn fleiri blaðamönnum og bransafólki í ár. Það er ekkert nema jákvætt fyrir íslenska tónlistarsenu og nú er opið fyrir umsóknir á netinu þar sem nýjar hljómsveitir geta sótt um að spila á hátíðinni.“
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Iceland Airwaves.
Hér fyrir neðan má sjá brot af stemmingunni í fyrra: