„Ég vona að það sé enginn að fara hætta. Að þetta muni ekki hafa þau áhrif og að menn haldi áfram," segir Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands.
Læknar fá ekki greidda yfirvinnu samkvæmt stimpilklukku. Þessari föstu yfirvinnu er því ætlað að greiða fyrir auka tíma umfram vinnuskyldu.
„Við sjáum það í okkar könnunum að hjá opinberum stofnunum eru 83% lækna að vinna yfirvinnu sem ekki er greidd af vinnuveitanda. Þetta er til dæmis í lok vinnudags þegar skurðlæknar hafa ekki lokið störfum. Og þegar læknar eru að sinna bráðveikum sjúklingi sem hefur komið inn," segir Reynir.

Hann segir þetta gert þar sem kjaraskerðingar hjá yfirstjórn hafi að minnsta kosti ekki verið kynntar. Erindinu hefur ekki verið svarað. Þá hafnaði Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, viðtali um málið í dag.
„Yfirstjórnin er að fá umtalsverðar fastar greiðslur með þessum hætti. Um fjögur hundruð milljónir króna sem fara til þeirra. Þannig það þarf nú kannski svona aðeins að skoða hvar sé verið að taka af í sparnaðinum þegar þrengir að dalnum," segir Reynir og óskar skýringa frá spítalanum.
„Það er mjög ósanngjarnt að þetta séu læknar sem lenda í þessu. Og einnig hjúkrunarfræðingar sem hafa lent í þessu áður. Þð er verið að taka þetta út á fólkinu á gólfinu í dag. Það er alveg augljóst," segir Reynir.