Náttúrufegurðin er alveg einstök Hjörvar Ólafsson skrifar 15. júlí 2019 19:30 Anna Berglind Pálmadóttir kemur hér fyst í mark í Laugavegshlaupinu sem hlaupið var í blíðskaparveðri á laugardaginn. Fréttablaðið/Friðleifur K. Friðleifsson
Þorbergur Ingi sigraði í karlaflokki á 4:32:15 sem er 11. besti tími karla í hlaupinu frá upphafi. Þetta er í 5. sinn sem Þorbergur klárar Laugavegshlaupið en hann hljóp Laugaveginn reyndar tvisvar sinnum í gær. Hann lagði af stað í nótt úr Þórsmörk í Landmannalaugar og fór svo af stað með öðrum hlaupurum morguninn eftir. Í öðru sæti var Örvar Steingrímsson á 4:44:39 sem er um tveggja mínútna bæting á hans besta tíma frá árinu 2014. Birgir Már Vigfússon var í 3. sæti á 4:55:55 og bætti tímann sinn frá 2016 um 25 mínútur. Anna Berglind sigraði í kvennaflokki en hún hljóp á 5:24:00 sem er sjötti besti tími kvenna í hlaupinu frá upphafi og 3. besti tími íslenskra kvenna. Besti tími Önnu Berglindar fyrir hlaupið í dag var 5:26:28 frá því í fyrra og hún því að bæta tímann sinn um tvær og hálfa mínútu. Í öðru sæti var Elísabet Margeirsdóttir á 5:56:16 en hún var að klára sitt tíunda Laugavegshlaup í dag og hljóp Laugaveginn einnig tvisvar eins og Þorbergur. Í þriðja sæti var Silke Ursula Eiserbeck frá Þýskalandi á 5:59:37. Aðstæður voru góðar að þessu sinni Bæði Þorbergur Ingi og Anna Berglind voru með forystu í hlaupinu frá upphafi. Aðstæður voru góðar á hlaupaleiðinni í dag, skýjað en sól öðru hvoru og hægur vindur. Óvenjulega lítill snjór var uppi við Hrafntinnusker sem er hæsti punktur leiðarinnar. „Það var alveg yndislegt að hlaupa að þessu sinni. Aðstæður voru mjög góðar, hlýtt og lítil sem engin úrkoma. Þá var skyggnið við Hrafntinnusker mun betra en í fyrra. Það var reyndar nokkur mótvindur á köflum. Þetta er í annað skipti sem ég hlaupi Laugavegshlaup og það er alveg ljóst að ég mun ekki láta mig vanta í framtíðinni. Það eru eiginlega allir hlauparar landsins saman komnir þarna og þetta er eiginlega eins og árshátíð,“ segir Anna Berglind í samtali við Fréttablaðið. Þorbergur Ingi Jónsson fagnar hér sigrinum við marklínuna í Þórsmörk.Fréttablaðið/Friðleifur K. Friðleifsson „Náttúrufegurðin í hlaupinu er alveg einstök og það eru alger forréttindi að fá að hlaupa við þessar aðstæður. Sjálfboðaliðar sjá svo til þess að það sé allt eins og best verður á kosið. Það er líka gaman að þekkja jafn marga hlaupara í hlaupinu eins og raun ber vitni. Ég hefði viljað hlaupa á betri tíma en ég er enn að glíma við þreytu eftir heimsmeistaramótið sem ég hljóp fyrir fimm vikum síðan. Ég fór of geyst af stað eftir það hlaup en ég læri bara af því,“ segir hún enn fremur um hlaupið. „Það er mikil gróska í utanvegahlaupum bæði hér heima og erlendis. Áhuginn á Laugavegshlaupinu hefur aukist á milli ára og í ár tók það einungis tvo daga að fylla hlaupið. Það er langtímamarkið hjá mér að taka þátt í UTMB-utanvegahlaupinu í Chamonix, þar sem hlaupið er á Mont Blanc. Það er eitt stærsta og sterkasta utanvegahlaup sem haldið er á hverju ári og þar er hlaupið í algerri náttúruparadís. Ég mun ekki ná því á þessu ári en ég stefni að því að gera það einhvern tímann á lífsleiðinni,“ segir þessi frábæri hlaupari um drauma sína í hlaupunum. „Nú ætla ég hins vegar að hvíla mig vel eftir þetta hlaup og næst á dagskrá er Súluhlaup á Akureyri um verslunarmannahelgina. Eftir það ætla ég svo að reima á mig götuskóna og búa mig undir að hlaupa maraþon í haust. Reykjavíkurmaraþonið er of snemma fyrr mig þannig að ég ætla að hlaupa maraþon erlendis í staðinn. Mig langar að hlaupa einhvern tímann maraþon í Bandaríkjunum, Valencia á Spáni og fleiri stöðum. Ég býst aftur á móti við því að hlaupa í Frankfurt í Þýskalandi í haust,“ segir hún um framhaldið hjá sér.
Birtist í Fréttablaðinu Hlaup Laugavegshlaupið Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Fram - Valur | Sögulegur fallslagur fyrir Val Íslenski boltinn Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Víkingur - Þór/KA | Bæði lið í lífsbaráttu Fram - Valur | Sögulegur fallslagur fyrir Val Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Browns byrjar óvænt með látum Arnar ekki lengur yfirlýsingaglaður Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Haukar halda sigurgöngunni áfram Sjá meira