Kalt í dag en tvær lægðir væntanlegar eftir helgi Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. febrúar 2019 07:39 Von er á þéttum éljabökkum sunnantil í dag. Vísir/vilhelm
Í dag verður nokkuð hvöss vestanátt og bjartviðri á Austurlandi. Gert er ráð fyrir hægri sunnanátt sunnanlands með nokkuð þéttum éljabökkum er líður á morguninn. Einnig verður éljagangur á Vestfjörðum og á nyrstu annesjum, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum en rétt ofan við frostmark yfir daginn víða við sjóinn í dag. Á morgun verður nokkuð rólegt veður, kalt með éljum úti við sjóinn. Búast má við austan hvassviðri sunnantil síðdegis á laugardag með snjókomu eða slyddu sem gengur yfir landið á sunnudag. Á mánudag er gert ráð fyrir allhvassri norðanátt og éljum norðanlands og verður kalt í veðri. Á þriðjudag er svo útlit fyrir lægð sunnan úr höfum með landsynningi, hlýnandi veðri og slyddu eða rigningu sunnan- og vestanlands. Önnur álíka lægð en heldur hlýrri er væntanleg í kjölfarið á miðvikudag.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á föstudag:Vestlæg eða breytileg átt og 3-10 m/s og víða él úti við sjóinn. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum. Á laugardag:Hæg austlæg eða breytileg átt og talsvert frost um morguninn, en vaxandi austanátt og dregur úr frosti þegar kemur eftir hádegi, 13-20 síðdegis með snjókomu eða slyddu syðst og hiti um og yfir frostmarki, en hægari og þurrt fyrir norðan en austan 8-15 og dálítil snjókoma þar um kvöldið og frost 1 til 5 stig. Á sunnudag:Austan- og norðaustanátt, hvassviðri norðvestantil en annars hægari. Talsverð slydda eða rigning A-lands, snjókoma N-lands, en rigning með köflum SV- og S-lands. Norðlægari um kvöldið og lægir S-lands og styttir upp, en áfram snjókoma N-til. Hiti 0 til 4 stig við S- og A-ströndina, en annars vægt frost. Á mánudag:Útlit fyrir strekkings eða allhvassa norðanátt með snjókomu eða éljum um landið norðanvert en hægari og bjartviðri syðra. Frost 1 til 8 stig en um frostmark við SA-ströndina. Á þriðjudag:Vaxandi suðaustan- og austanátt með slyddu og síðar rigningu sunnan- og vestanlands og hlýnandi veðri. Á miðvikudag:Sunnan og suðaustanátt og rigning, einkum sunnan- og vestanlands og frostlaust um allt land.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira