Viðskipti innlent

Staða félagsins sterk þrátt fyrir taprekstur

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Icelandair Group áætlar að tap félagsins vegna kyrrsetningar Boeing 737-MAX flugvélanna verði ekki minna en sautján milljarðar. Forstjóri félagsins segir það algjörlega óhugsandi að félagið fái ekki bætur greiddar frá flugvélaframleiðandanum. Ellefu milljarða króna tap hefur verið á rekstri flugfélagsins fyrstu sex mánuði þessa árs en forstjórinn segir að staða félagsins sé þó sterk.

Tap Icelandair á öðrum ársfjórðungi þessa árs er rúmega 40,8 milljónir Bandaríkjadala sem er að jafnvirði rúmlega fimm milljarða íslenskra króna. Tapið eykst á milli ára en á sama tímabili í fyrra nam tapið 25 milljónum dala. Þetta kom fram í ársfjórðungsuppgjöri félagsins sem birt var eftir lokun markaða í dag.

Forsjóri félagsins segir að þrátt yfir tap í rekstri undanfarin misseri sé staða félagsins áfram mjög sterk.

„Við erum með sterkan efnahagsreikning og lausafjárstöðu og það er okkar stefna að halda efnahagsreikningnum þannig. Við erum með yfir fjögur hundruð milljónir dollara í eigið fé og um tvö hundruð milljónir í lausafé,“ segir Bogi Nil Bogason, forstjóri Icelandair Group.

Kyrrsetning fjögurra Boeing MAX-737 flugvéla félagsins hefur haft mikil áhrif á rekstur félagsins og gæti tapið vegna þess numið meira en sautján milljörðum króna þegar upp er staðið. Bogi segir að stað félagsins væri allt önnur ef ekki væri fyrir kyrrsetningu vélanna.

„Afkoman núna af okkar grunnstarfsemi er betri heldur en í fyrra og annar ársfjórðungur var rekinn með hagnaði ef við tökum út MAX áhrifin, þannig að þá erum við að skila hagnaði,” segir Bogi.

Óvíst er hvenær kyrrsetning MAX vélanna verði aflétt en Boeing flugvélaframleiðandinn hefur gefið það út að fyrirtækið komi til með að greiða viðskiptavinum sínum bætur vegna málsins.

Eruði tilbúin með plan B fari það svo að þið fáið ekki bætur?

„Ég sagði það, að það væri óhugsandi að við fengjum ekki bætur og ég stend við það enda er Boeing búið að taka frá í sínu bókhaldi verulega fjárhæðir sem að þeir ætla að nota til þess að bæta flugfélögum þennan skaða þannig að það er algjörlega óhugsandi að við fáum ekki tjónið bætt,“ segir Bogi.

Bogi segir félagið skoða alla möguleika til hagraæðingar til þess að bæta rekstur félagsins.

„Við viljum lækka kostnað og auka tekjur og höfum verið að gera það og við erum að sjá árangur á þessu ári og munum halda því áfram,“ segit Bogi.

Uppsagnir?

„Í stóru fyrirtæki eins og okkar þá eru alltaf einhverjar breytingar. Það eru uppsagnir hér og ráðningar þar og þannig er það bara, en við erum ekki með einhverjar stórar uppsagnir á teikniborðinu,“ segir Bogi.


Tengdar fréttir

Icelandair tapaði 4,2 milljörðum á öðrum ársfjórðungi

Flugfélagið Icelandair tapaði 4,2 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins fyrir fjórðunginn sem kynnt var í kvöld. Tap félagsins eftir skatta og fjármagnsliði er 2,9 milljarðar. Forstjóri Icelandair Group segir kyrrsetningu MAX-vélanna hafa haft gríðarleg áhrif á afkomu og rekstur félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×