Viðskipti erlent

Ekki lengur Facebook heldur FACEBOOK

Samúel Karl Ólason skrifar
Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, svaraði spurningum þingmanna í síðasta mánuði.
Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, svaraði spurningum þingmanna í síðasta mánuði. AP/Andrew Harnik
Fyrirtækið Facebook kynnti í dag nýtt merki fyrirtækisins. Merkinu, FACEBOOK, er ætlað að aðgreina fyrirtækið frá stærsta samfélagsmiðli þess, Facebook, og í senn tengja aðra samfélagsmiðla þess eins og Instagram, WhatsApp og Messenger við FACEBOOK. Fyrirtækið var stofnað fyrir um fimmtán árum og snýst um mun meira en bara upprunalega samfélagsmiðilinn.

Merkið FACEBOOK mun breyta um lit, eftir því í hvaða miðli fyrirtækisins það birtist. Breytingin mun taka gildi á komandi vikum, samkvæmt tilkynningu.



Áhugasamir geta kynnt sér hönnunarferli nýja merkisins hér.



Samkvæmt Bloomberg kom til greina að breyta nafni móðurfélagsins. Það var þó ekki lendingin og var það vegna þess að forsvarsmenn Facebook vildu ekki láta líta út fyrir að þeir væru á flótta undan vandræðum Facebook. Þau eru umtalsverð.

Svona munu tengsl miðla og fyrirtækisins koma í ljós í forritum Facebook.
Forsvarsmenn Facebook hafa meðal annars verið harðlega gagnrýndir fyrir að bregðast ekki nægilega við áróðri og fölskum upplýsingum á samfélagsmiðlinum. Stefna Facebook er sú að stjórnmálamenn megi beinlínis ljúga í auglýsingum.



Facebook hefur einnig verið harðlega gagnrýnt vegna meðhöndlunar á persónuupplýsingum og vegna umsvifa þess og stærðar. Stjórnmálamenn vestanhafs hafa jafnvel lagt til að fyrirtækið verði brotið upp í smærri einingar. Elizabeth Warren, forsetaframbjóðandi og öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins, hefur meðal annara lagt það til.

Sömuleiðis hefur fyrirtækið orðið fyrir mótlæti vegna áætlunar um að stofna rafmynt sem hægt verði að nota til að greiða fyrir vörur og þjónustu

47 ríkissaksóknarar víðsvegar um Bandaríkin rannsaka nú viðskiptahætti Facebook og þá með sérstakri áherslu á það hvort forsvarsmenn þess hafi brotið samkeppnislög. Rannsóknir þessar eru leiddar af ríkissaksóknara New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×