Eldsprengjur og táragas við tækniháskólann Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. nóvember 2019 20:15
Lögregla kínverska sjálfsstjórnarsvæðisins Hong Kong gerði í dag áhlaup á mótmælendur sem reyndu að draga athygli lögregluþjóna frá háskóla í borginni. Þar hafa mótmælendur hreiðrað um sig og setið fastir undanfarna daga. Táragasi og eldsprengjum var kastað á víxl við Hong Kong tækniháskólann og hefur aldrei verið jafnmikil harka í þessum tæplega hálfs árs löngu mótmælum. Lögregla umkringdi skólann á sunnudag með það markmið að handtaka mótmælendur sem höfðu byrgt sig inni í byggingunni. Um hundrað mótmælendur reyndu að flýja skólann í dag en voru flestir handteknir. Geng Shuang, upplýsingafulltrúi kínverska utanríkisráðuneytisins, var harðorður á blaðamannafundi í dag. „Það sem er að gerast í Hong Kong flokkast ekki lengur til friðsamlegra mótmæla heldur ofbeldisfullra aðgerða öfgamanna gegn almennum borgurum. “ Hann sagði aukinheldur að mótmælendur stefndu öryggi borgara í hættu en lögregla hafi unnið að því að verja almenna borgara og eigur þeirra. Mikilvægt sé að koma á reglu á svæðinu á ný. Ástandið í Hong Kong hefur vakið heimsathygli. Þýsk stjórnvöld segjast fylgjast vel með. Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar sagði Þjóðverja hveta bæði lögreglu og mótmælendur til þess að sýna stillingu og mæta til viðræðna.
Hong Kong Kína Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira