Skaut íslenska landsliðið á kaf en vill ekki lengur spila með ÍR-ingum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2019 13:35 Roberto Kovac í leiknum á móti Íslandi. Mynd/fiba.basketball
ÍR-ingar héldu að þeir hefðu dottið í lukkupottinn þegar þeir sömdu við Svisslendinginn Roberto Kovac á dögunum ekki síst þegar þeir sáu hann skjóta íslenska landsliðið á kaf í leik upp á líf eða dauða í undankeppni EM. Nú er komið babb í bátinn því Roberto Kovac vill losna undan samningi sínum og semja frekar við króatíska félagið Cibona. Karfan.is segir frá þessu nýja útspili Svisslendingsins. Roberto Kovac skoraði sex þrista og 29 stig á móti Íslandi þegar Svisslendingar unnu upp tuttugu stiga forskot og tryggðu sig áfram á kostnað íslensku strákanna. Nokkrum dögum áður höfðu ÍR-ingar tilkynnt að Roberto Kovac væri búinn að semja við félagið og myndi spila með ÍR í Domino´s deildinni í vetur. Króatískir vefmiðlar hafa greint frá því að Roberto Kovac hafi samið við Cibona í króatísku úrvalsdeildinni. Liðið leikur einnig í ABA deildinni og er talsvert sterkara lið en lið ÍR. Borche Ilievski, þjálfari ÍR, sagði í viðtali við karfan.is að Roberto væri enn leikmaður ÍR og að Cibona þyrfti að ræða við Breiðhylingana ef þeir ætluðu að semja við Kovac.
Dominos-deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira