Körfubolti

Tindastóll bætir við sig Bandaríkjamanni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Stólarnir safna liði.
Stólarnir safna liði. vísir/bára

Tindastóll hefur bætt við sig bandarískum leikmanni fyrir átökin í Dominos deild karla í körfubolta á komandi ári.

Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Deremy Terrel Geiger og er 29 ára gamall Bandaríkjamaður, fæddur á Hawaii. 

Í tilkynningu Tindastóls segir að hann geti leyst stöðu leikstjórnanda og skotbakvörðs en hann er 180 sentimetrar á hæð og hefur leikið sem atvinnumaður víða. Nú síðast í Frakklandi en hann hefur einnig leikið í Finnlandi, Tékklandi og Slóvakíu.

Hann er fimmti erlendi leikmaðurinn í leikmannahópi Stólanna sem sitja í 3.sæti Dominos deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Stjörnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×