Körfubolti

Martin atkvæðamikill í öruggum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Martin Hermannsson hefur spilað afar vel í vetur.
Martin Hermannsson hefur spilað afar vel í vetur. vísir/getty

Íslenski körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson var í eldlínunni með Alba Berlin í kvöld þegar liðið heimsótti Hamburg Towers.

Martin er í stóru hlutverki í sóknarleik Alba og stóð fyrir sínu í kvöld þar sem hann skoraði 12 stig á þeim 22 mínútum sem hann spilaði í leiknum en Alba Berlin vann öruggan sigur, 75-100.

Martin var jafnframt stoðsendingahæsti leikmaður vallarins með 8 stoðsendingar auk þess að stela einum bolta.

Litháinn öflugi, Rokas Giedraitis, var stigahæstur hjá Alba Berlin með 22 stig.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×